Fóstur
From Wikipedia, the free encyclopedia
Fóstur er afkvæmi sem er enn í móðurkviði. Það þróast út frá fósturvísi (sem er frumstig þroskans). Í manninum byrjar fósturstigið níu vikum eftir frjóvgun (sama tímabil kallast 11. vika meðgöngu)[lower-alpha 1] og er fram að fæðingu.[1] Þar sem fóstur þroskast smátt og smátt eru ekki greinileg mörk sem aðgreina fósturvísi frá fóstri, en í fóstri eru þó öll líffærin orðin til (þó þau séu ekki orðin fullþroska, og sum ekki enn komin á réttan stað).
- Fyrir börn sem fá uppeldi hjá öðrum en foreldrum sínum, sjá fósturbörn.
Fóstur geta næstum aldrei lifað af utan móðurkviðs fyrr en eftir 23 vikna meðgöngu (5 mánuðir og 3 vikur). Um 20–35% barna sem fæðast við 23 viku meðgöngu lifa af, 50–70% sem fæðast 24–25 viku (6 mánuðir til 6 mánuðir og 1 vika), og yfir 90% barna sem fæðast eftir 26–27 viku (6 og hálfur mánuður til 6 mánuðir og 3 vikur).[2] Það er mjög sjaldgæft að barn sem vegur minna en hálft kíló lifi af.[3]