Verkamannafélagið Dagsbrún
íslenskt stéttarfélag From Wikipedia, the free encyclopedia
íslenskt stéttarfélag From Wikipedia, the free encyclopedia
Verkamannafélagið Dagsbrún var stéttarfélag verkamanna í Reykjavík, stofnað 26. janúar árið 1906. Árið 1998 sameinaðist það fleiri verkalýðsfélögum í Eflingu stéttarfélagi.
Fyrsta verkamannafélag Íslands var stofnað á Seyðisfirði árið 1897. Á næstu árum var hugað að félagsstofnun verkamanna víðar um land. Skriður komst á málin í Reykjavík síðla árs 1905, þegar hópur manna hittist til að leggja drög að stofnun félags. Á nýársdag 1906 hófst útgáfa fyrsta verkamannablaðs á Íslandi, Alþýðublaðsins (eldra) og stóð útgáfa þess í á annað ár.
Þegar kom að stofnfundi Dagsbrúnar, höfðu hátt í 400 menn undirritað stofnskrá félagsins. Sigurður Sigurðsson búfræðingur var kjörinn fyrsti formaður félagsins. Á fundinum voru jafnframt gerðar samþykktir um kaupgjald og vinnutíma. Var þar miðað við að venjulegur dagvinnutími teldist ellefu klukkustundir í stað tólf klukkustunda áður.
Síðar sama ár varð Dagsbrún eitt af stofnfélögum Verkamannasambands Íslands, sem stofnað var í Reykjavík þann 15. nóvember.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.