From Wikipedia, the free encyclopedia
Vallarsveifgras (fræðiheiti: Poa pratensis) er ein af mörgum tegundum sveifgrasa (Poa) sem finna má í heiminum. Á Íslandi vex tegundin villt en er einnig notuð til túnræktar, í íþróttavelli og í grasflatir.
Vallarsveifgras | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vallarsveifgras (Poa pratensis) | ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Poa pratensis L. | ||||||||||||||
Vallarsveifgras er fremur lágvaxin tegund, hún er oftast 30-50 sm á hæð. Tegundin tilheyrir puntgrösum og er puntur vallarsveifgrass keilulaga, þar sem neðstu greinar puntsins eru lengstar. Hvert smáax hefur 3-5 blóm. Axagnirnar eru oftast fjólubláar.
Blöð plöntunnar eru fremur breið (3-5 mm), flöt og enda í totu, líkt og bátsstefni. Það er gott greiningareinkenni sveifgrasa. Vallarsveifgras myndar öflugar neðanjarðarrenglur og fjölgar sér gjarnan þannig.
Vallarsveifgras hefur í ríkum mæli verið notað til túnræktar, þó notkun þess hefur eilítið minnkað síðustu árin. Það gefur þokkalega uppskeru og gefur góðan endurvöxt. Fóðrið er lystugt, næringar- og steinefnaríkt. Því er gjarnan sáð í blöndu með vallarfoxgrasi. Það er einnig töluvert notað í íþróttavelli og grasflatir vegna þess hvað það þolir traðk vel.
Á Íslandi eru að minnsta kosti níu tegundir sveppa þekktar sem lifa annað hvort með vallarsveifgrasi eða á vefjum þess, dauðum eða lifandi. Þessar tegundir eru grasdrjóli (Claviceps purpurea), grashólkur (Epichloë typhina), grasméla (Erysiphe graminis)[1] og svo lítt þekktari tegundirnar, Drechslera poae, Phaeoseptoria poae, Puccinia brachypodii var. poae-nemoralis sem myndar ryðgró á vallarsveifgrasi, Stagonospora montagnei, Stagonospora nodorum og Wojnowicia hirta.[2]
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.