From Wikipedia, the free encyclopedia
Sagnorð eða sagnir (skammstafað sem so.) eru orð sem lýsa atburðum. Þegar sögn er tiltekin ein og sér er nafnháttarmerkið að oft haft á undan henni og endar hún þá ofast á -a (að lesa, að skrifa, að syngja). Þetta kallast nafnháttur sagnarinnar. Þá hafa sagnir í íslensku sterka, veika og blandaða beygingu. Sagnir hafa þrjú einkenni:
Sagnir í nafnhætti enda oftast á -a:
en í nokkrum sögnum hefur -a fallið á brott eftir -á:
Einnig eru til miðmyndarsagnir sem enda á -st:
Aðeins tvær sagnir enda á -u og eru þær báðar núþálegar (nafnháttarmerkið ‚að‘ er ekki notað með þeim):
aðeins ein endar á -e:
og aðeins ein endar á -o:
Íslensk sögn í persónuhætti stendur ýmist í fyrstu, annarri eða þriðju persónu, eintölu eða fleirtölu. Ég, við, vér (1. persónufornafn í nefnifalli) hefur með sér sögn í fyrstu persónu. Þú, þið, þér (2. persónufornafn í nefnifalli) hefur með sér sögn í annarri persónu. Hann, hún, það, þeir, þær, þau (3. persónufornafn í nefnifalli) og önnur fallorð, t.d. nafnorð, hafa með sér sögn í þriðju persónu. Dæmi:
Í 3. pers. et. enda allar sagnir á -r. Þessi ending er upprunalegust í þýsku og hollensku af nútíðarmálunum enda er sama ending í latínu og öðrum fjölskyldum. Í ensku hefur -t orðið að -s enda enda ekki óalgeng þróun, og síðan -s að -r í dönsku & íslensku. Að stökkva frá -t til -r má teljast ólíklegt. Endingar 1. & 2. persónu fleirtölu eru vísast einskonar gamlar viðskeitingar sbr, farðu, sjáðu, sbr. öll aukaföllin af 1. persónu persónufornafninu og að fleirtöluform 1.p. persónufornafnins hefst á -m í öllum málum austur af Þýskalandi, hvort heldur sem er finska eða ungverska eða slavnesku málum, í ítölsku breyttist -m í -n sbr. noi en í þýsku málunum í -v. Sumar sagnir eru aðeins notaðar í þriðju persónu eintölu. Þær beygjast ekki eftir persónum en skýra aðeins frá því að eitthvað eigi sér stað, án þess að getið sé hver valdi því. Kallast slíkar sagnir ópersónulegar. Þessar sagnir eru margvíslegar en oft tákna þær veðurfar, komu dagstíma og árstíma, ástand eða líðan o.fl. Dæmi; snjóar, rignir, hitnar, kólnar, dagar, kvöldar, vorar, haustar, hungrar, þyrstir, batnar, versnar.
Fallorð fyrstu, annarrar eða þriðju persónu í aukafalli stendur oft með ópersónulegri sögn en ákveður þó ekki persónuna. Sögnin batnar er t.d. óbreytt hvort sem fyrir framan hana stendur mér, þér, okkur, ykkur o.s.frv. Þetta er vegna þess að fallorð í aukafalli ákveður aldrei persónu sagnar.
Ýmsar sagnir eru ýmist persónulegar eða ópersónulegar og veltur það á merkingunni hvort heldur er. Dæmi; sögnin að minna er persónuleg þegar hún merkir að minna einhvern á eitthvað en ópersónuleg er hún þegar hún merkir að minnast einhvers, ráma í eitthvað:
Persónuleg | Ópersónuleg | ||
Ég minni á loforðið | 1. pers. et | Mig minnir þetta | 3. pers. et. |
Við minnum á loforðið | 1. pers. ft. | Þig minnir þetta | 3. pers. et. |
Þú minnir hana á loforðið | 2. pers. et. | Hann minnir þetta | 3. pers. et. |
Þið minnið hana á loforðið | 2. pers. ft | Okkur minnir þetta | 3. pers. et. |
Hann minnir hana á loforðið | 3. pers. et. | Ykkur minnir þetta | 3. pers. et. |
Þeir/þær/þau minnið hana á loforðið | 3. pers. ft. | Þá/þær/þau minnir þetta | 3. pers. et. |
Ópersónulega sögnin breytist ekki; er ávallt eins og 3. persóna eintölu persónulegu sagnarinnar. Meðal annarra sagna sem eru ýmis persónulegar eða ópersónulegar má nefna; bera, fjölga, fækka, leggja, reka.
Nokkrar ópersónulegar sagnir hafa fallorð í þolfalli: mig dreymir, fýsir, grunar, hungrar, langar, lystir, skortir, vantar, verkjar, þyrstir. Einhverjir hafa tilhneigingu til notkunar þágufalls með þessum sögnum, t.d. „?mér langar“, og er sú tilhneiging kölluð þágufallssýki. Þykir hún ekki til eftirbreytni. Ekki er ólíklegt að þessi „sýki“ stafi af því að nokkrar sagnir hafa fallorð í þágufalli; mér batnar, þykir, líkar, líður, gagnar, dugir, sem getur valdið ruglingi.
Sagnirnar hlakka (til) og kvíða eru persónulegar og ráðast því af nefnifalli; ég hlakka til, við kvíðum fyrir. Forðast ætti notkun aukafalla með þessum sögnum.
Í nafnhætti er oftast notað -a með nokkrum undantekningum (þvo, frá þváa, ske - tökuorð, fá, flá, gá, lá, ná, sjá, má, afmá, sá, slá, spá, tjá, há, hrjá, þrá,) og miðmyndarsagnir í nútíma íslensku enda á -st.
Sagnir greinast í áhrifssagnir (áhrs.) og áhrifslausar sagnir (áhrl. s.).
Sögn sem stýrir falli er fallvaldur og kallast sú sögn áhrifssögn. Áhrifssagnir valda því að fallorð sem þær stýra standa í aukafalli. Fallorðið sem stendur með áhrifssögninni kallast andlag.
Sumar sagnir stýra aðeins einu falli (ekki tæmandi):
Sumar sagnir stýra tveimur fallorðum eins og í setningunni „maðurinn gefur kettinum (þgf.) fisk (þf.)“ kallast tvígildar áhrifssagnir (eða tveggja andlaga sögn). Þessi upptalning er ekki tæmandi:
Sögn sem ekki stýrir falli kallast áhrifslaus sögn eins og vera, verða, heita og þykja. Orðin sem með þeim standa kallast sagnfyllingar. Þessi fallorð geta verið nafnorð eða lýsingarorð.
Orsakarsögn er ný sögn sem má mynda af annarri kennimynd margra sterkra sagna. Orsakarsögn hefur ekki sömu merkingu og sögnin sem hún er mynduð af, en þær eru oft merkingarlega skyldar. Orsakarsögn hefur alltaf veika beygingu og oft á sér stað i-hljóðvarp við myndun hennar.
Fyrsta kennimynd | Önnur kennimynd | Þriðja kennimynd | Fjórða kennimynd |
---|---|---|---|
nafnháttur | fyrsta persóna eintala þátíð framsöguháttur | fyrsta persóna fleirtala þátíð framsöguháttur | lýsingarháttur þátíðar |
Að brjóta | Ég braut | Við brutum | Ég hef brotið |
Að fara | Ég fór | Við fórum | Ég hef farið |
Af annari kennimynd sagnarinnar „að brjóta“ sem er „ég braut“ má draga orðið „að breyta“. Það að „au“ breytist í „ey“ kallast i-hljóðvarp. Af annari kennimynd sagnarinnar „að fara“ sem er „ég fór“ má draga orðið „að færa“. Það að „ó“ breytist í „æ“ kallast líka i-hljóðvarp.
Fyrsta kennimynd | Önnur kennimynd | Þriðja kennimynd |
---|---|---|
nafnháttur | fyrsta persóna eintala þátíð framsöguháttur | lýsingarháttur þátíðar |
Að breyta | Ég breytti | Ég hef breytt |
Að færa | Ég færði | Ég hef fært |
Orsakarsagnir má mynda af eftirfarandi sögnum; rísa, líta, sitja, þrífa, sleppa, drekka, sjóða, fljóta, rjúka, spretta, hníga.
Sögn er sjálfstæð þegar hún segir fulla hugsun ásamt því orði sem ákveður persónu hennar, t.d. maðurinn hlær. Annars er sögnin ósjálfstæð, t.d. maðurinn heitir...
Áhrifslausar, ósjálfstæðar sagnir eru fáar:
Tíðir sagna eru tvær. Nútíð og þátíð. Þar að auki er hægt að nota hjálparsagnirnar hafa og munu og mynda sex samsettar tíðir sagna. Nútíð á við um eitthvað sem er ekki liðið. Þátíð á við um eitthvað sem er liðið.
Dæmi:
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.