Remove ads
From Wikipedia, the free encyclopedia
Rudolf Eucken (5. janúar 1846 – 15. september 1926) var þýskur heimspekingur sem hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 1908.
Eucken fæddist og ólst upp í Neðra-Saxlandi hjá einstæðri móður. Hann hóf nám í heimsspeki og lagði sérstaklega fyrir sig siðfræði og guðfræðilega heimspeki. Hann kenndi við menntastofnanir víða um Þýskaland, var um tíma við Harvard í Bandaríkjunum en hlaut að lokum prófessorsstöðu við Háskólann í Jena.
Skrif Eucken um heimspeki kristinnar trúar vöktu mikla athygli og var hann sagður hafa komið guðfræðilegri heimspeki til bjargar á tímum þar sem ýmsir menntamenn sóttu hart að trúarbrögðum.
Rudolf Eucken lést árið 1926. Hann átti þrjú börn, þar á meðal soninn Walter Eucken sem varð kunnur hagfræðingur og einn af hugmyndafræðingunum á bak við þýska efnahagsundrið á árunum eftir seinni heimsstyrjöldina.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.