From Wikipedia, the free encyclopedia
Robert Burns (25. janúar 1759 – 21. júlí 1796), einnig þekkt sem Rabbie Burns, var skoskt þjóðskáld. Hann er þekktasta skoska skáldið sem orti á skosku, en hann orti líka á skoskuskotinni ensku, til að ná til fleiri lesenda víða um heim. Burns skrifaði jafnframt á staðalensku, en á því máli tjáði hann sig hispurslaust um stjórnmál og borgaralegt líf.
Robert Burns Rabbie Burns | |
---|---|
Fæddur | 25. janúar 1759 Ayrshire, Skotlandi |
Dáinn | 21. júlí 1796 Dumfries, Skotlandi |
Störf | Skáld |
Maki | Jean Armour |
Undirskrift | |
Burns er talinn frumherji rómantíkurinnar en eftir andlát hans nýttu stofnendur frjálslyndisstefnu og sósíalismans verk hans til innblásturs. Hann var dýrkaður mikið á 19. og 20. öld og hafa áhrif hans á skoskar bókmenntir lengi verið töluverð. Árið 2009 kusu Skotar hann stórkostlegasta Skota allra tíma.
Þótt Burns semdi mörg verk sjálfur safnaði hann einnig þjóðlögum úr öllum hornum Skotlands en oft breytti hann þeim. Ljóðið og lagið „Auld Lang Syne“ er oft flutt eða sungið á gamlárskvöldi (Hogmanay á skosku). Lagið „Scots Wha Hae“ hefur lengi verið óopinber þjóðsöngur Skotlands. Meðal annarra þekktra ljóða og laga eftir Burns eru „A Red, Red Rose“, „A Man's a Man for A' That“, „To a Louse“, „To a Mouse“, „The Battle of Sherramuir“, „Tam o' Shanter“ and „Ae Fond Kiss“.
Í Skotlandi og víðar um heim er haldið upp á Burnsnótt þann 25. janúar ár hvert. Burnsnótt er óopinber þjóðhátíðardagur Skotlands þar sem fleiri halda upp á hann en Andrésarmessu, opinberan þjóðdag Skotlands. Burnsnótt er fagnað með skoskum mat (haggis, nípum og kartöflum) og ljóð hans „Address to a Haggis“ er lesið upphátt.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.