Remove ads
From Wikipedia, the free encyclopedia
Pinus nelsonii, er furutegund ættuð frá fjöllum norðaustur Mexíkó, í Nuevo León, San Luis Potosí og Tamaulipas í 1,800–3,200 m hæð. Hún hefur nokkuð sérstök einkenni og er ekki mjög lík hinum í undirættkvíslinni í formi[2][3][4] eða erfðum.[5][6] Hún er sett í undirættkvíslina Strobus, annaðhvort í eigin deild Nelsonia[3] eða undirdeild Nelsoniae.[5]
"Pinus nelsonii is exceptional. Evidence from three nuclear genes (Syring et al., 2005) and cpDNA (Gernandt et al., 2005) resolve P. nelsonii as sister lineage to the remaining members of sect. Parrya. In contrast, the LEA-like locus used in this study places P. nelsonii in a unique, moderately supported (71% BS) position sister to sect. Quinquefoliae when midpoint rooting is employed."[6]
Pinus nelsonii | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Ástand stofns | ||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||
Pinus nelsonii Shaw | ||||||||||||||||
Náttúruleg útbreiðsla Pinus nelsonii | ||||||||||||||||
Þetta er lítið tré að 10 m hátt, með bol að 20 til 30sm í þvermál. Krónan er rúnnuð og þétt og líkist hinni óskyldu Pinus pinea frá vestur miðjarðarhafssvæðinu. Barrið er í búntum, þrjú saman (einstaka sinnum fjögur), en samvaxin á jöðrunum svo þær virðast sem ein nál.[7][8] Þær eru 4–8 (sjaldan 10) sm langar og 0.7–1 mm breiðar, dökkgrænar að lit, með viðvarandi blaðslíður 7–9 mm langt. Könglarnir eru sívalir, 6–12 cm langir og 4–5 sm breiðir, gulbrúnir til rauðbrúnir, með 60–100 köngulhreistur með stórum en ógreinilegum hnúð, og hanga á gildum niðursveigðum stilk 3–6 sm löngum. Ólíkt öllum öðrum furum hættir ekki vöxtur óþroskaðra köngla ekki yfir veturinn. Fræin eru stór, 12–15 mm, rauðbrún. Könglarnir þroskast í nóvember eftir regntímabilið. Hún vex í hálfþurru tempruðu loftslagi með sumarrigningu og er mjög þurrkþolin.[4][9][10]
Fræin eru æt og bragðgóð og vinsæl og það verðmæt að þau eru flutt á markaðina í Mexíkóborg. Þetta og skógarhögg getur valdið álagi á tegund með takmarkaða útbreiðslu. Fyrst nýlega hefur hún verið ræktuð utan útbreiðslusvæðisins, meira fyrir grasafræðilega forvitni en fyrir útlitið.[4]
Fræðiheitið er stundum ranglega skráð Pinus nelsoni; rétta endingin er -ii.[9]
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.