Remove ads
From Wikipedia, the free encyclopedia
Oscar Reutersvärd (29. nóvember 1915 – 2. febrúar 2002) var sænskur myndlistarmaður sem fékkst við teikningar á ómögulegum hlutum, það er þrívíðum hlutum sem aldrei gætu verið til í þremur víddum. Reutersvärd varð fyrir áhrifum frá skrifum eðlisfræðingsins Rogers Penrose og helgaði sig rannsóknum á þrívíðum þverstæðum eins og endalausa stiganum sem hann uppgötvaði á undan Penrose og M. C. Escher sem gerði hann síðar frægan. Reutersvärd aðhylltist púrisma sem er afsprengi kúbisma. Hann teiknaði því ekki raunsætt umhverfi kringum formin eins og Escher gerði heldur hélt sig strangt við rúmfræðileg form, alltaf með sama sjónarhorni (samsíða sjónarhorni eða japönsku sjónarhorni) og gerði meðal annars um 2500 númeraðar myndir af þessum toga.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.