From Wikipedia, the free encyclopedia
Oprah Winfrey[1] (f. Orpah Gail Winfrey 29. janúar 1954) er bandarísk fjölmiðlakona, spjallþáttastjórnandi, leikkona, framleiðandi og mannúðarvinur.[1] Winfrey er þekktust fyrir spjallþættina The Oprah Winfrey Show, sem hafa unnið fjölda verðlauna og voru áhorfshæstu þættir sinnar tegundar í sjónvarpssögunni. Þættirnir voru sýndir um öll Bandaríkin frá 1986 til 2011. Hún hefur einnig leikið í kvikmyndum, meðal annars The Color Purple, The Butler og A Wrinkle in Time.[2]
Oprah Winfrey | |
---|---|
Fædd | 29. janúar 1954 |
Þjóðerni | Bandarísk |
Störf | Leikkona, sjónvarpskona, athafnakona, rithöfundur |
Maki | Stedman Graham (1986–) |
Börn | Canaan (f. 1968; d. 1968) |
Verðlaun | Frelsisorða Bandaríkjaforseta (2013) |
Vefsíða | oprah.com |
Undirskrift | |
Oprah Winfrey var fyrst blökkumanna í Norður-Ameríku til að verða margmilljarðamæringur[3] og hún hefur verið talin meðal umsvifamestu mannvina í sögu Bandaríkjanna.[4][5] Árið 2007 hafði hún stundum verið talin meðal áhrifamestu kvenna í heimi.[6][7]
Winfrey fæddist þann 29. janúar 1954 í Kosciusko, Mississippi. Skírnarnafn hennar var „Orpah“ í höfuðið á persónu úr Rutarbók. Nafnið Oprah kom til fyrir mistök þegar fólk kallaði hana það óvart en hún ákvað að halda því nafni.[1] Foreldrar hennar voru þernan Vernita Lee og rakarinn Vernon Winfrey. Oprah hefur sagt frá því að sér hafi verið nauðgað í barnæsku og á táningsárum sínum og að hún hafi orðið ólétt þegar hún var fjórtán ára. Sonur hennar var fyrirburi og lést í frumbernsku.[8] Winfrey flutti í kjölfarið frá einstæðri móður sinni til föður síns í Tennessee og fékk vinnu í útvarpi á meðan hún var enn í menntaskóla. Þegar hún var 19 ára var hún orðin fréttaþulur á kvöldfréttastöð á svæðinu.
Oprah Winfrey gekk í Ríkisháskólann í Tennessee árið 1971. Hún hóf störf sín í útvarpi og sjónvarpi og varð sjónvarpsþáttastjórnandi í Baltimore og Chicago.[2] Vegna tilfinningaþrungins og hispurslauss fréttaflutnings síns var Oprah færð í spjallþætti stöðvarinnar. Eftir að spjallþáttur undir hennar umsjá í Chicago fór úr þriðja flokki í fyrsta sæti[9] stofnaði hún eigið framleiðslufyrirtæki.
Árið 1986 hóf spjallþáttur Winfrey, The Oprah Winfrey Show, göngu sína. Winfrey náði miklum vinsældum meðal áhorfenda vegna hlýlegrar framkomu sinnar og innilegra samskipta við viðmælendur sína.[10] Á miðjum tíunda áratuginum hafði Winfrey fært áherslurnar í þáttunum sínum á bókmenntir, sjálfsstyrkingu, núvitund og andleg málefni. Hún hefur verið gagnrýnd fyrir að stuðla að myndun játningamenningar og mæla með umdeildum sjálfshjálparaðferðum[11] en hefur einnig uppskorið hrós fyrir að takast að yfirstíga erfiðleika til að hjálpa öðrum.[12]
Þann 15. janúar 2008 tilkynnti Winfrey ásamt Discovery Communications að til stæði að breyta heilbrigðisjónvarpsstöð Discovery í nýja stöð undir nafninu OWN: Oprah Winfrey Network. Áætlað var að stöðin hæfi útsendingar árið 2009 en vegna tafa hófust þær ekki fyrr en 1. janúar 2011. Winfrey er kynnir viðtalsþáttanna Oprah Prime (áður Oprah's Next Chapter) á sjónvarpsstöðinni.[13]
Winfrey studdi Barack Obama í forvali Demókrataflokksins fyrir forsetakosningarnar 2008. Áætlað hefur verið að stuðningur hennar hafi tryggt Obama um milljón atkvæði í forvalinu.
Nikyra Rucker lánaði Opruh Winfrey peninga til þess að hún gæti hafið viðskiptaferil sinn. Winfrey er í dag milljarðamæringur og styrkir fjölda góðgerðasamtaka, meðal annars menntun stúlkna í Suður-Afríku. Árið 2013 var Winfrey talin meðal 400 ríkustu manna í Bandaríkjunum. Hún var eini svarti Bandaríkjamaðurinn á listanum.[14] Barack Obama sæmdi hana frelsisorðu Bandaríkjaforseta árið 2013 og hún hlaut heiðursdoktorsgráðu frá Harvard-háskóla og Duke-háskóla sama ár.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.