From Wikipedia, the free encyclopedia
Nykur er þjóðsagnavera sem líkist mjög hesti, og er oftast steingrár eða apalgrár að lit. Aðaleinkenni nykursins eru þau að hófarnir snúa aftur og hófskeggin fram, öfugt við það sem er á eðlilegum hesti. Nykrar eiga sér hliðstæðu í þjóðtrú nágrannalanda, t.d. Noregs og Orkneyja.
Nykur en nefndur ýmsum nöfnum á íslensku s.s nennir, nóni, vatnaskratti eða kumbur. Hann er einnig stundum nefndur vatnahestur, þó það sé oftast haft um flóðhest eða venjulegan hest sem er þeim eiginleikum búinn að vera traustur að vaða straumhörð vatnsföll.
Nykur er samkvæmt þjóðtrúnni bæði að finna í ám og stöðuvötnum og jafnvel sjó. Þegar sprungur koma í ísa á stöðuvötnum að vetri til verða stundum dunur miklar, þá er sagt að nykurinn hneggi. Nykurinn reynir gjarnan að tæla menn á bak sér. Þeir sem fara á bak sitja þar fastir með einhverjum hætti en nykurinn hleypur óðar að vatninu þar sem hann á sér óðal og steypir sér á kaf og drekkir þeim sem á honum situr. Hann þolir ekki að heyra nafn sitt nefnt, en heyri hann það tekur hann viðbragð og hleypur í vatnið. Það hefur borið við að hann hafi fyljað merar af hestakyni. Það einkennir alla þá hesta sem eru undan nykri að þeir leggjast niður ef þeim er riðið eða þeir bera bagga yfir vatnsfall sem vætir kvið þeirra. Fjölmörg örnefni tengd nykrinum eru til um land allt, s.s. Nykurtjörn, Nykurvatn, Nykurpyttur og mörg fleiri.
Í biblíu 20. aldar, nánar til tekið í Job 40.15-24 í Gamla testamentinu, er talað um nykur. Það er einhverskonar tilraun til að þýða hið hebreska orð, behemot, sem notað er í ýmsum erlendum þýðingum. Það hefur verið túlkað sem hinar ýmsu skepnur meðal fræðinga, allt frá flóðhesti, krókódíl, vatnavísundi og fornfíli, og sumir hafa jafnvel viljað meina að behemot hafi verið risaeðla.
|
erlendir
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.