Morfín (C17H19NO3) er sterkt verkjalyf sem unnið er úr ópíumi sem það er helsta virka efnið í. Kerfisbundið nafn þess er 7,8-dídehýdró-4,5-epoxý-17-metýlmorfínan-3,6-díól. Nafn lyfsins er dregið af draumaguðinum Morfeosi.
Morfín (sem og önnur ópíumskyld lyf) virkar beint á miðtaugakerfið í mönnum. Það er oft notað í lækningaskyni til að deyfa óbærilegan sársauka vegna beinbrota, skurðaðgerða, áfalla, krabbameins o.fl.
Saga
Þýski apótekarinn Friedrich Wilhelm Adam Serturner einangraði morfín fyrstur manna árið 1804 og nefndi það „morphium“ eða morfín, eftir gríska guðinum Morfeosi. Ýmis efni hafa verið unnin úr eða byggð á morfíni, meðal annarra heróín (díasetýlmorfín) og var það fyrst gert árið 1853. Það var hins vegar ekki fyrr en sprautan kom til sögunnar árið 1874 sem notkun þess varð mikil.
Áhrif á menn
Hliðarverkanir morfíns eru minni hugræn geta, sælutilfinning, svimi, sinnuleysi, skert sjón og ógleði. Morfín dregur einnig úr matarlyst og veldur hægðartregðu. Morfín er afskaplega ávanabindandi og neytendur þess þróa fljótt með sér þol og líkamlega jafnt sem sálfræðilega fíkn.
Morfín er helst gefið:
- til að lina mikinn sársauka, til dæmis
- sársauka eftir skurðaðgerð
- sársauka við áfall/slys
- til að lina langvarandi sársauka
- vegna stærri tannaðgerða
- hjá krabbameinssjúklingum
- sem viðbót við deyfingu
Heimildir
- „Fyrstu sprautunálarnar (á ensku)“. Sótt 2. nóvember 2005.
Tenglar
- Hvað getið þið sagt mér um morfín?; af Vísindavefnum Geymt 2 nóvember 2012 í Wayback Machine
- Vefsíða Doktor.is um morfín Geymt 13 október 2004 í Wayback Machine
- „Upplýsingar um 'hermannaveikina' (á ensku)“. Sótt 2. nóvember 2005.
Wikiwand in your browser!
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.