Forseti Írans From Wikipedia, the free encyclopedia
Masoud Pezeshkian (persneska: مسعود پزشکیان; f. 29. september 1954) er íranskur hjartaskurðlæknir og umbótasinnaður stjórnmálamaður sem er núverandi forseti Írans.[2] Pezeshkian sat áður á íranska þinginu fyrir kjördæmið Tabriz, Osku og Azarshahr og var jafnframt varaforseti þingsins frá 2016 til 2020. Hann var heilbrigðis- og læknanámsráðherra frá 2001 til 2005 í ríkisstjórn Mohammads Khatami.[3] Pezeshkian var kjörinn sveitarstjóri sýslanna Piranshahr og Naghadeh í Vestur-Aserbaísjan-fylki á níunda áratugnum.[4] Hann gaf kost á sér í forsetakosningum Írans árið 2013 en dró framboð sitt til baka, og aftur árið 2021 en hlaut ekki framboðsleyfi.[5] Pezheskhian bauð sig aftur fram til forseta árið 2024, í kosningum sem haldnar voru eftir að forsetinn Ebrahim Raisi lést í þyrluslysi. Í þetta sinn hlaut Pezeshkian leyfi stjórnvalda til að bjóða sig fram og var kjörinn forseti í seinni umferð þann 5. júlí.[6]
Masoud Pezeshkian مسعود پزشکیان | |
---|---|
Forseti Írans | |
Núverandi | |
Tók við embætti 30. júlí 2024 | |
Þjóðhöfðingi | Ali Khamenei |
Varaforseti | Mohammad Reza Aref |
Forveri | Mohammed Mokhber (starfandi) |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 29. september 1954 Mahabad, Íran |
Þjóðerni | Íranskur |
Börn | 4[1] |
Háskóli | Tabriz-háskólinn í læknavísindum Íranski háskólinn í læknavísindum |
Undirskrift |
Pezeshkian fæddist í Mahabad í Vestur-Aserbaísjan-fylki þann 29. september 1954[7] og er kominn af írönskum Aserum.[8] Árið 1973 lauk hann stúdentsprófi og flutti til Zabol til að gegna herþjónustu. Á þessum tíma varð hann áhugasamur um læknisfræði. Hann sneri aftur til heimahéraðs síns eftir að hafa lokið herþjónustu og gekk í læknaskóla og útskrifaðist með gráðu í almennri læknisfræði. Á tíma stríðs Írans og Íraks (1980–1988) fór Pezeshkian oft fram á vígstöðvarnar, þar sem hann hafði umsjón með að senda læknateymi og vann sem hermaður og herlæknir. Pezeshkian hlaut starfsleyfi sem heimilislæknir árið 1985 og hóf að kenna lífeðlisfræði við læknaskólann.
Auk persnesku talar Pezeshkian mörg tungumál, þar á meðal asersku, kúrdísku, arabísku og ensku.[9][10]
Pezeshkian hélt áfram námi eftir stríðið og sérhæfði sig í almennum skurðlækningum við Tabriz-læknisfræðiskólann. Árið 1993 hlaut hann undirsérgrein í hjartaskurðlækningum við Íranska læknisfræðiskólann. Hann varð síðar sérfræðingur í hjartaskurðlækningum og varð forseti Tabriz-læknisfræðiskólans árið 1994. Hann gegndi þeirri stöðu í fimm ár.[11]
Pezeshkian hóf feril í stjórnmálum þegar hann tók sæti í ríkisstjórn Mohammads Khatami sem aðstoðarheilbrigðisráðherra árið 1997. Hann var útnefndur heilbrigðisráðherra fjórum árum síðar og gegndi því embætti frá 2001 til 2005.[12][óvirkur tengill] Síðan þá hefur hann verið kjörinn á íranska þingið fimm sinnum fyrir kjördæmi í Tabriz, og var varaforseti þingsins frá 2016 til 2020.
Þann 6. júlí 2024 var Pezeshkian kjörinn forseti Írans eftir að hafa unnið sigur í seinni umferð forsetakosninga daginn áður með 16,3 milljónum atkvæða (53,7%) gegn 13,5 milljónum (44,3%) sem Saeed Jalili hlaut.[13] Áætlað er að hann taki við embætti einhvern tímann á milli 22. júlí og 5. ágúst 2024, eftir að hann hefur sagt upp þingsæti sínu.[14]
Pezeshkian er kórankennari og upplesari Nahj al-balagha, lykiltexta meðal sjíamúslima.[15]
Pezeshkian er stuðningsmaður íslamska byltingarvarðliðsins og hefur sagt að í núverandi mynd sé það „frábrugðið því sem áður var“.[16] Hann fordæmdi skilgreiningu ríkisstjórnar Donalds Trump Bandaríkjaforseta á byltingarvarðliðinu sem hryðjuverkasamtökum árið 2019.[17] Eftir að Íranir skutu niður bandarískan dróna árið 2019 sakaði Pezeshkian ríkisstjórn Bandaríkjanna um hryðjuverk og lýsti ákvörðun byltingarvarðliðsins um að skjóta hann niður sem „sterku kjaftshöggi gegn glæpaleiðtogum Bandaríkjanna“.[18] Pezeshkian klæddist einkennisbúningi byltingarvarðliðsins á háskólafundi til að svara gagnrýni og sagðist myndu klæðast honum aftur.[19]
Pezeshkian hefur ítrekað gagnrýnt stjórnkerfi Írans. Á tíma mótmælanna í Íran árið 2009 flutti Pezeshkian ræðu þar sem hann gagnrýndi meðferð stjórnvalda á mótmælendum. Í ræðunni vitnaði hann til orða Alís, fyrsta imams sjíamúslima, til Maliks Ashtar um að ekki bæri að koma fram við fólk „eins og villidýr“.[20]
Pezeshkian kallaði viðbrögð íranskra stjórnvalda við mótmælunum 2018 „vísindalega og vitsmunalega röng“. Hann kenndi íranska kerfinu um mótmælin og sagði: „Við hefðum átt að gera betur“.[21] Eftir mótmælin gegn dauða Möhsu Amini árið 2022 krafðist Pezeshkian þess að stofnað yrði sérstakt teymi til að meta og skýra atvikið. Þrátt fyrir að segjast telja að meðferð stjórnvalda á mótmælendunum og réttarhöldin gegn þeim stæðust ekki stjórnarskrá landsins, og krefjast þess að sakborningunum yrðu útvegaðir lögmenn, gaf hann síðar út yfirlýsingu þar sem hann fordæmdi mótmælin og sagði þau ekki þjóna hagsmunum almennings.[22]
Pezeshkian hefur lagt áherslu á réttindi þjóðernishópa eins og Asera, Kúrda og Balúka og segir að vernda beri réttindi allra þessara hópa. Hann styður að 15. gr. stjórnarskrár Írans verði innleidd fyrir alla þjóðernishópa. Í henni stendur: „Opinbert og sameiginlegt tungumál og stafróf fólksins í Íran er persneska. Skjöl, samskipti, opinber gögn og kennslubækur verða að vera á þessu máli en notkun staðbundinna tungumála og tungumála þjóðarbrota í fréttum og fjölmiðlum og kennsla á bókmenntum þeirra í skólum er frjáls, samhliða persneska tungumálinu.“ Pezeshkian segir að innleiðing þessarar meginreglu dragi úr hvöt aðskilnaðarsinna og andófsmanna.[23] Pezeshkian styður jafnframt að aserska verði kennd í írönskum skólum.[5]
Eiginkona Pezeshkians var kvensjúkdómalæknir.[24] Hún lést ásamt yngsta syni þeirra árið 1993 í bílslysi.[25] Hann ól upp tvo eftirlifandi syni og dóttur sína einn og kvæntist aldrei aftur.[26] Dóttir hans, Zahra, er með mastersgráðu í efnafræði frá Sharif-tækniháskólanum, og vann hjá undirdeild íranska olíufélagsins áður en stjórn Hassans Rouhani tók við völdum. Hún er gjarnan talin pólitískur ráðgjafi.
Pezeshkian er aðdáandi fótboltaliðsins Tractor S.C.[27]
Heimildir telja fjölskyldu Pezeshkians vera langt frá stjórnmálalífi hans og hann er sjálfur talinn hafa flekklaust orðspor í efnahagsmálum. Pólitískir andstæðingar hans hafa hins vegar sakað hann um að vernda fólk sem er viðriðið spillingu.[28][29]
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.