Filippseyskur blaðamaður og Nóbelsverðlaunahafi From Wikipedia, the free encyclopedia
Maria Angelita Ressa (f. 2. október 1963) er filippseysk-bandarískur blaðamaður og meðstofnandi og framkvæmdastjóri fréttavefsíðunnar Rappler.[1] Hún hafði áður unnið í tæpa tvo áratugi sem rannsóknarblaðamaður CNN í Suðaustur-Asíu. Ressa hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 2021 ásamt rússneska blaðamanninum Dmítríj Múratov fyrir baráttu þeirra fyrir tjáningarfrelsi í heimalöndum sínum.[2]
Maria Ressa | |
---|---|
Fædd | 2. október 1963 |
Þjóðerni | Filippseysk |
Menntun | Princeton-háskóli (BA) Filippseyjaháskóli í Diliman |
Störf | Blaðamaður |
Verðlaun | Friðarverðlaun Nóbels (2021) |
Vefsíða | rappler.com mariaressa.com |
Ressa hefur starfað sem yfirmaður fréttastofu CNN bæði í Djakarta í Indónesíu og í Maníla á Filippseyjum. Hún hefur jafnramt stýrt fréttastofu stærstu sjónvarpsstöðvar Filippseyja, ABS-CBN. Hún stofnaði Rappler árið 2012 ásamt tveimur starfssystrum sínum.[3]
Árið 2020 var Ressa dæmd sek fyrir meiðyrði[4][5] vegna brota gegn umdeildum lögum um netglæpi sem sett höfðu verið árið 2012.[6][7] Dómurinn gegn henni var víða gagnrýndur af mannréttindahópum og blaðamönnum sem árás gegn fjölmiðlafrelsi.[8][9][10]
Árið 2018 var Ressa í hópi blaðamanna sem bandaríska tímaritið Time útnefndi manneskju ársins fyrir baráttu þeirra gegn falsfréttum. Þann 13. febrúar 2019 var Ressa handtekin vegna ásakana um að Rappler hefði birt falsfréttir um viðskiptajöfurinn Wilfredo Keng. Fréttin, sem birt var árið 2012, fjallaði um tengsl hans við fyrrverandi dómara við hæstarétt landsins.[11] Í júní 2020 var hún sakfelld af dómstóli í Maníla fyrir meiðyrði.[5] Bent hefur verið á að fréttagreinin sem um ræddi var birt áður en netglæpalögin tóku gildi.[12]
Þar sem Ressa er hávær gagnrýnandi Rodrigo Duterte, forseta Filippseyja, hefur víða verið litið á handtöku og sakfellingu hennar sem pólitíska aðför af hálfu ríkisstjórnarinnar.[13][14] Ressa tók fyrsta viðtal sitt við Duterte á níunda áratugnum, þegar hann var borgarstjóri Davaó. Árið 2015, þegar Duterte var í framboði til forseta, tók Ressa við hann viðtal sem vakti heimsathygli þar sem hann viðurkenndi að hafa drepið þrjár manneskjur á borgarstjóratíð sinni. Eftir að Duterte var kjörinn forseti fór Ressa í auknum mæli að beina sjónum sínum að nettröllum úr hópi stuðningsmanna Duterte sem dreifðu falsfréttum á vefnum í þágu forsetans. Rappler fjallaði einnig um fíkniefnastríð Duterte og fjölda fólks sem hefur verið tekið af lífi án dóms og laga á stjórnartíð hans. Duterte hefur á móti sakað Rappler um að flytja falsfréttir og stjórn hans hefur sakað miðilinn um að stunda skattsvik.[3] Ressa og miðill hennar voru sýknuð af ákæru um skattalagabrot í september 2023.[15]
Ressa er meðal 25 leiðtoga í upplýsinga- og lýðræðisnefnd Blaðamanna án landamæra.[16]
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.