Bandarísk leikkona og hinsegin aktívisti From Wikipedia, the free encyclopedia
Laverne Cox (f. 29. maí 1972) er bandarísk leikkona og hinsegin aktívisti.[1][2][3] Hún steig fram á sjónarsviðið með hlutverki sínu sem Sophia Burset í Netflix-þáttaröðinni Orange Is the New Black og var fyrsta trans manneskjan sem var tilnefnd til Primetime Emmy-verðlauna í leikaraflokki[4][5] og einnig fyrsta trans manneskjan til að vera tilnefnd til Emmy-verðlauna síðan tónskáldið Angela Morley var tilnefnd árið 1990.[6] Árið 2015 vann hún Daytime Emmy-verðlaun í flokkinum Outstanding Special Class Special sem aðalframleiðandi Laverne Cox Presents: The T Word[7][8] sem gerir hana að fyrstu trans konunni til að vinna verðlaunin.[7] Árið 2017 varð hún fyrsta trans manneskjan sem lék trans persónu í föstu hlutverki í bandarísku sjónvarpi, í hlutverki sínu Cameron Wirth í þáttum CBS, Doubt.[9]
Laverne Cox | |
---|---|
Fædd | 29. maí 1972 |
Störf |
|
Ár virk | 2000–núverandi |
Vefsíða | lavernecox |
Cox tók þátt í fyrstu þáttaröðinni af raunveruleikaþættinum I Want to Work for Diddy á VH1 sem keppandi og var meðframleiðandi og meðstjórnandi „makeover“-þáttaraðarinnar TRANSform Me á VH1. Í apríl 2014 heiðraði GLAAD Cox með með Stephen F. Kolzak verðlaununum fyrir starf sitt í þágu trans samfélagsins.[10] Í júní 2014 varð Cox fyrsta trans manneskjan til að birtast á forsíðu tímaritsins Time.[4][11][12] Cox er fyrsta trans manneskjan sem birtist á forsíðu tímaritsins Cosmopolitan, í suður-afrískri útgáfu blaðsins, í febrúar 2018.[13] Hún er einnig fyrsta opinberlega trans manneskjan sem á vaxmynd af sér á Madame Tussauds-vaxmyndasafni.[14]
Cox fæddist í Mobile, Alabama[15] og var alin upp af einstæðri móður og ömmu hennar innan AME Zion-kirkjunnar.[16] Hún á eineggja tvíburabróður, M Lamar,[17] sem lék Sophiu áður en hún kom út sem trans (þá Marcus) í Orange Is the New Black.[18][19][20] Cox hefur lýst því yfir að hún hafi gert sjálfsvígstilraun 11 ára gömul þegar hún uppgötvaði að hún væri skotin í karlkyns bekkjarfélögum sínum og hún hafði verið lögð í einelti í fleiri ár fyrir að haga sér ekki „eins og einhver sem var úthlutað karlkyni við fæðingu ætti að haga sér“.[16][21][22]
Hún útskrifaðist úr Alabama School of Fine Arts í Birmingham, Alabama, þar sem hún lærði skapandi skrif áður en hún skipti yfir í dans.[23] Hún nam síðan í tvö ár við Indiana University Bloomington[24] áður en hún fór yfir í Marymount Manhattan College í New York-borg þar sem hún skipti úr dansi (klassískum ballett nánar tiltekið)[25] yfir í leiklist.[19][26] Í fyrstu þáttaröð hennar á Orange Is the New Black kom hún enn fram á veitingastað á Lower East Side sem dragdrottning, þar sem hún hafði upphaflega sótt um að vinna sem þjónn.[27]
Eftir að hafa keppt í fyrstu þáttaröðinni af I Want to Work for Diddy leitaði VH1 til hennar varðandi hugmyndir að sjónvarpsþáttum.[28] Út úr því kom „makeover“-þáttaröðin TRANSform Me, sem gerði Cox að fyrstu afrísk-amerísku trans manneskjunni sem framleiddi og lék í eigin sjónvarpsþætti.[29][30] Báðir þættir voru tilnefndir til GLAAD Media Award í flokki framúrskarandi raunveruleikaþáttar og þegar Diddy vann árið 2009 tók Cox við verðlaununum við athöfnina og hélt ræðu sem San Francisco Sentinel lýsti sem „með þeim áhrifamestu því [hún] minnti okkur á hversu mikilvægt það er að segja okkar sögur, allar okkar sögur.“[31][32][33] Cox hefur einnig leikið í fjölda sjónvarpsþátta og kvikmynda, þar á meðal Law & Order: Special Victims Unit, Bored to Death og Musical Chairs.
Árið 2013 fékk Cox reglulegt hlutverk í Netflix-þáttaröðinni Orange is the New Black sem Sophia Burset, trans kona sem var send í fangelsi fyrir kreditkortasvindl. Á því ári sagði hún: „Sophia er skrifuð sem margvíð persóna hvers spor áhorfendur geta virkilega sett sig í – allt í einu finna þeir samúð með alvöru trans manneskju. Og fyrir trans fólk þarna úti sem þarf að sjá fólk eins og það með reynslu eins og það endurspeglað, þá verður það mjög mikilvægt.“[34]
Í janúar 2014 var Cox gestur ásamt Carmen Carrera í sjónvarpsþætti Katie Couric, Katie. Couric kallaði trans fólk „transgenders“ og eftir að Carrera neitaði að svara spurningum um skurðaðgerðir, nánar tiltekið hvers konar kynfæraaðgerð hún hefði undirgengist, beindi hún sömu spurningu að Cox. Cox svaraði á eftirfarandi hátt:
I do feel there is a preoccupation with that. The preoccupation with transition and surgery objectifies trans people. And then we don't get to really deal with the real lived experiences. The reality of trans people's lives is that so often we are targets of violence. We experience discrimination disproportionately to the rest of the community. Our unemployment rate is twice the national average; if you are a trans person of color, that rate is four times the national average. The homicide rate is highest among trans women. If we focus on transition, we don't actually get to talk about those things.[35]“
— .
Fréttamiðlar á borð við Salon, The Huffington Post og Business Insider fjölluðu um það sem Katie McDonough hjá Salon kallaði glórulausar og nærgöngular spurningar Couric.[36]
Cox var á forsíðu Time þann 9. júní 2014 og var birt viðtal við hana í formi greinarinnar „The Transgender Tipping Point“ eftir Katy Steinmetz. Greinin birtist í áðurnefndu tölublaði og var titill hennar á forsíðu blaðsins. Þannig varð Cox fyrsta trans manneskjan á forsíðu Time.[11][37][38]
Síðar á árinu 2014 varð Cox fyrsta trans manneskjan sem var tilnefnd til Primetime Emmy verðlauna í leikaraflokki, en hún var tilnefnd sem framúrskarandi gestaleikkona í gamanþáttaröð (Outstanding Guest Actress in a Comedy Series) fyrir hlutverk sitt sem Sophia Burset í Orange Is the New Black.[6][39][40] Hún kom einnig fram í tónlistarmyndbandinu við lagið „You & I (Nobody in the World)“ með John Legend.[41]
Cox tók þátt í herferð árið 2014 sem beindist gegn lögum í Phoenix, Arizona, sem heimila lögreglu að handtaka hvern þann sem er grunaður um að „gefa til kynna vændi“ (e. manifesting prostitution) sem að hennar mati beinist gegn lituðum trans konum, í kjölfar sakfellingar aðgerðasinnans (og lituðu trans konunnar) Monicu Jones.[42] Seinna sama ár gaf Sylvia Rivera Law Project út myndband þar sem Cox las bréf frá trans fanganum Synthia China Blast, þar sem fjallað var um algeng vandamál sem trans fangar standa frammi fyrir.[43] Þegar Cox komst að því að Blast hefði verið sakfelld fyrir nauðgun og morð á 13 ára barni árið 1993 skrifaði hún á Tumblr-síðuna sína: „Mér var ekki kunnugt um ákærurnar sem hún var dæmd fyrir. Ef ég hefði vitað af þessum sakarefnum hefði ég aldrei samþykkt að lesa bréfið."[43]
Cox kom fram í árlegu „Rebels“-blaði V síðla árs 2014.[44] Fyrir blaðið bað V frægt fólk og listafólk að tilnefna þau sem það leit á sem sitt persónulega uppreisnarfólk (e. personal rebels) og Natasha Lyonne tilnefndi Cox.[44] Cox var einnig á forsíðu októberheftis Essence tímaritsins árið 2014, ásamt leikkonunum Alfre Woodard, Nicole Beharie og Danai Gurira.[45]
Þann 17. október 2014 var klukkutíma löng heimildarmynd, Laverne Cox Presents: The T Word, sem Cox framleiddi og talaði inn á, frumsýnd á sjónvarpsstöðvunum MTV og Logo.[46] Sama ár birtist Cox á forsíðu fimm ára afmælisútgáfu tímaritsins C☆NDY ásamt 13 öðrum trans konum: Janet Mock, Carmen Carrera, Geena Rocero, Isis King, Gisele Alicea, Leyna Ramous, Dina Marie, Nina Poon, Juliana Huxtable, Niki M'nray, Pêche Di, Carmen Xtravaganza (House of Xtravaganza) og Yasmine Petty.[47]
Árið 2015 vann Cox Daytime Emmy-verðlaun í flokkinum Outstanding Special Class Special sem aðalframleiðandi Laverne Cox Presents: The T Word.[7][8] Þetta gerði Cox að fyrstu trans konunni til að vinna Daytime Emmy-verðlaun sem aðalframleiðandi. The T Word er einnig fyrsta trans heimildarmyndin sem vinnur Daytime Emmy.[7] Sama ár var Cox meðal fólks sem kom nakin fram í hinni árlegu „Nudes“-útgáfu Allure og var hún fyrsta trans leikkonan til þess.
Cox var á forsíðu „totally not-straight“ útgáfu Entertainment Weekly sem kom út þann 11. júní 2015, en það var fyrsta tölublað tímaritsins í 15 ár sem einblíndi aðeins á afþreyingu fyrir homma, lesbíur og trans fólk.[48]
Í júní 2016 birti Human Rights Campaign myndband sem virðingarvott fyrir fórnarömb skotárásarinnar á næturklúbbnum í Orlando. Í myndbandinu sögðu Cox og fleiri sögur fólksins sem var myrt í téðri árás.[49][50]
Árið 2017 hóf Cox að leika hlutverk trans lögfræðingsins Cameron Wirth í þáttunum Doubt á CBS.[9] Eftir að aðeins tveir þættir höfðu verið sýndir tilkynnti CBS hins vegar að þættirnir yrðu teknir af dagskrá, sem skildi framtíð þeirra þátta sem eftir voru ósýndir eftir í óvissu.[51] Þetta var fyrsta þáttaröðin sem var formlega slaufað á 2016–17 sjónvarpstímabilinu, eftir dræmt áhorf. CBS tilkynnti síðar að þeir 11 þættir sem eftir voru yrðu sýndir á laugardögum frá og með 1. júlí.[52]
Cox var árið 2017 tilnefnd til Primetime Emmy-verðlauna í flokkinum Outstanding Guest Actress in a Drama Series (framúrskarandi gestaleikkona í dramaþáttaröð) fyrir hlutverk hennar í Orange Is the New Black.[53]
Árið 2017 vann Cox með ACLU, Zackary Drucker, Molly Crabapple og Kim Boekbinder að gerð myndbands um sögu trans fólks sem hét „Time Marches Forward & So Do We“, en Cox talaði inn á það.[54] Sama ár varð Cox eitt af fjórum andlitum haustherferðar Ivy Park fatalínunnar.[55]
Í febrúar 2019 var Cox í aðalhlutverki á tískuvikunni í New York fyrir 11 Honoré, lúxusnetverslun með sérhæfingu í hönnunarfötum í stærri stærðum (e. plus-sized).[56]
Cox kom fram í tónlistarmyndbandinu við lag Taylor Swift, „You Need to Calm Down,“ sem kom út þann 17. júní árið 2019.[57]
Hún var ein fimmtán kvenna sem gestaritstjórinn Meghan, hertogaynja af Sussex, valdi til að birtast á forsíðu septemberheftis breska <i id="mwATc">Vogue</i> 2019. Þar með varð Cox fyrsta trans konan sem birtist á forsíðu breska Vogue.[58][59][60]
Í september 2019 tók Cox ACLU lögfræðinginn Chase Strangio með sér á Emmy-verðlaunin 2019 og var með sérsniðna regnbogahandtösku sem á stóð „Oct 8,“ „Title VII“ og „Supreme Court.“ Þetta var vísun í hæstaréttarmálaferlin R.G. & G.R. Harris Funeral Homes Inc. v. Equal Employment Opportunity Commission, en Strangio var einn af lögfræðingunum sem varði Aimee Stephens í því máli, trans konu sem var rekin úr starfi sínu á útfararstofu. Cox og Strangio ræddu við fréttamenn á rauða dreglinum um hið væntanlega dómsmál.[61] [62] Cox var aðalframleiðandi heimildarmyndarinnar Disclosure: Trans Lives on Screen sem frumsýnd var á Netflix þann 27. janúar 2020.[63][64]
Í maí 2021 tilkynnti E! að Cox myndi sjá um Live from the Red Carpet frá og með janúar 2022, í stað Giuliana Rancic.[65] Í desember 2021 fékk hún hlutverk í dystópísku fantasíumyndinni Uglies frá Netflix, í leikstjórn McG, sem byggð er á samnefndri bók eftir Scott Westerfeld.[66]
Cox hefur af hinsegin jafningjum sínum, auk margra annarra, verið talin brautryðjandi fyrir trans samfélagið[67] og hefur hún unnið til fjölda verðlauna fyrir aðgerðasinnaða nálgun sína við að vekja vitund almennings á málefnum trans fólks. Áhrif hennar og sýnileiki í fjölmiðlum hafa leitt til vaxandi samtals um trans menningu,[68] sérstaklega í samhengi við trans konur, og hvernig það að vera trans skarast við aðrar breytur svo sem litarhátt.[69] Hún er fyrsta trans manneskjan sem birtist forsíðu tímaritsins Time,[4] fyrsta trans manneskjan til að vera tilnefnd til Primetime Emmy-verðlauna[40] og fyrsta trans manneskjan með vaxstyttu af sjálfri sér á söfnum Madame Tussauds,[14] sem og fyrsta trans konan til að vinna Daytime Emmy sem aðalframleiðandi.[70] Í maí 2016 hlaut Cox heiðursdoktorsnafnbót frá The New School í New York borg fyrir framsækið starf sitt í baráttunni fyrir jafnrétti kynjanna.[71]
Ár | Titill | Hlutverk | Skýringar |
---|---|---|---|
2000 | Betty Anderson | Deirdre | Stuttmynd |
2004 | The Kings of Brooklyn | Girl | |
2008 | All Night | Layla | Stuttmynd |
2009 | Uncle Stephanie | Stephanie | |
2010 | Bronx Paradise | Hooker | |
2011 | Carla | Cinnamon | |
Musical Chairs | Chantelle | ||
2012 | Migraine | Lola | Stuttmynd |
The Exhibitionists | Blithe Stargazer | ||
2013 | 36 Saints | Genesuis | |
2014 | Grand Street | Chardonnay | |
Laverne Cox Presents: The T Word | Hún sjálf | Daytime Emmy Awards for Outstanding Special Class Special (2015)
Tilnefnd - GLAAD Media Award for Outstanding Documentary (2015) | |
2015 | Grandma | Deathy | |
2017 | Freak Show | Felicia | |
2019 | Can You Keep a Secret? | Cybill | |
Charlie's Angels | Bomb Instructor | Gestaleikur | |
2020 | Bad Hair | Virgie | |
Promising Young Woman | Gail | ||
Disclosure: Trans Lives on Screen | Hún sjálf | Einnig aðalframleiðandi | |
2021 | Jolt | Detective Nevin |
Ár | Titill | Hlutverk | Skýringar |
---|---|---|---|
2008 | Law & Order: Special Victims Unit | Candace | Þáttur: „Closet“ |
I Want to Work for Diddy | Hún sjálf | 6 þættir | |
Law & Order | Minnie | Þáttur: „Sweetie“ | |
2009 | Bored to Death | Transsexual prostitute | Þáttur: „Stockholm Syndrome“ |
2010 | TRANSform Me | Hún sjálf | Einnig framleiðandi
8 þættir |
2013–2019 | Orange Is the New Black | Sophia Burset | Reglulegt hlutverk – 40 þættir
Screen Actors Guild Award for Outstanding Performance by an Ensemble in a Comedy Series (2015–2016) Tilnefnd — Critics' Choice Television Award for Best Supporting Actress in a Comedy Series (2014) Tilnefnd — NAACP Image Award for Outstanding Supporting Actress in a Comedy Series (2015–2017) Tilnefnd — Primetime Emmy Award for Outstanding Guest Actress in a Comedy Series (2014) Tilnefnd — Primetime Emmy Award for Outstanding Guest Actress in a Drama Series (2017, 2019–2020) |
2014 | Faking It | Margot | Þáttur: „Lying Kings and Drama Queens“ |
Girlfriends' Guide to Divorce | Adele Northrop | Þáttur: „Rule No. 426: Fantasyland: A Great Place to Visit“ | |
2015–2017 | The Mindy Project | Sheena | 3 þættir |
2016 | The Rocky Horror Picture Show: Let's Do the Time Warp Again[88] | Dr. Frank-N-Furter | Sjónvarpsmynd |
2016–2019 | Lip Sync Battle | Hún sjálf | 2 þættir |
2017 | America's Got Talent | Hún sjálf; gestadómari | 1 þáttur (S12E10) |
Doubt | Cameron Wirth | 13 þættir | |
2019 | Weird City | Liquia | Þáttur: „Smart House“ |
Tuca & Bertie | Ebony Black (rödd) | Þáttur: „The Sex Bugs“ | |
Dear White People | Cynthia Fray | Þáttur: „Chapter VII“ | |
A Black Lady Sketch Show | Kiana | Þáttur: „Angela Bassett Is the Baddest Bitch“ | |
2020 | Awkwafina Is Nora from Queens | God (rödd) | Þáttur: „Pilot“ |
Curb Your Enthusiasm | Hún sjálf | Þáttur: „Artificial Fruit“ | |
One World: Together at Home | Hún sjálf | ||
2021 | The Blacklist | Dr. Laken Perillos | Þáttur: „Dr. Laken Perillos“[89] |
2022 | Celebrity Wheel of Fortune | Hún sjálf | Þáttaröð 2, þáttur 13[90] |
Inventing Anna | Kacy Duke | Reglulegt hlutverk | |
Titill | Albúm |
---|---|
The Rocky Horror Picture Show:
Let's Do the Time Warp Again (with Various Artists) |
|
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.