From Wikipedia, the free encyclopedia
Hugo Grotius eða Huig de Groot eða Hugo de Groot (10. apríl 1583 – 28. ágúst 1645) var hollenskur lögfræðingur. Hann lagði ásamt Francisco de Vitoria grunn að alþjóðarétti sem byggist á náttúrurétti. Hann var einnig heimspekingur, leikskáld og ljóðskáld.
Vestræn heimspeki Heimspeki 17. aldar | |
---|---|
Nafn: | Hugo Grotius |
Fæddur: | 10. apríl 1583 |
Látinn: | 28. ágúst 1645 (62 ára) |
Skóli/hefð: | Rökhyggja |
Helstu ritverk: | De Indis; Mare Liberum; De jure belli ac pacis |
Helstu viðfangsefni: | Réttarheimspeki, stjórnspeki, alþjóðastjórnmál |
Markverðar hugmyndir: | Náttúruréttur, samfélagssáttmálinn, rétturinn til stríðs |
Áhrifavaldar: | Aristóteles, skólaspeki, Cicero, Desiderius Erasmus |
Hafði áhrif á: | Thomas Hobbes, John Locke, Immanuel Kant, skosku upplýsinguna |
Grotius fæddist í Delft á tímum áttatíu ára stríðsins. Faðir hans var menntamaður og veitti syni sínum góða menntun í anda húmanismans og hugmynda Aristótelesar. Hann var undrabarn og komst inn í háskólann í Leiden þegar hann var aðeins ellefu ára gamall. Grotius útskrifaðist úr háskólanum 1598 og var þá boðið að fara með í opinbera sendiför til Frakklands. Þegar hinn fimmtán ára gamli Grotius fékk áheyrn hjá konungi þá hreifst Hinrik 4. Frakkakonungur mjög af gáfum hans og bað um að undrinu frá Hollandi skyldi haldið eftir í Frakklandi. Grotius dvaldi í Frakklandi um hríð en sneri til Hollands og varð lögfræðingur í Haag árið 1599 og síðan opinber sagnaritari hollenska ríkisins árið 1601. Hann hóf fyrst að skrifa skipulega um alþjóðalög árið 1604 þegar hann blandaðist í mál sem tengdust töku holleskra kaupmanna á portúgölsku skipi í Singapúrflóa.
Hollendingar stóðu í stríði við Spánverja og Portúgali þegar hlaðið kaupskip Santa Catarina var hertekið af kapteininum Jacob van Heemskerk árið 1603.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.