Enron
bandarískt orku- og hrávörusölufyrirtæki From Wikipedia, the free encyclopedia
Enron Corporation var bandarískt orku-, hrávöru- og þjónustufyrirtæki með aðsetur í Houston, Texas. Það var stofnað af Kenneth Lay árið 1985 við samruna fyrirtækjanna Lay's Houston Natural Gas og InterNorth, tveggja tiltölulega lítilla raforku- og gassölufyrirtækja. Fyrir gjaldþrot fyrirtækisins þann 2. desember 2001 störfuðu um 20.000 manns hjá Enron, sem var m.a stórtækt á sviði raforku- og jarðgassölu, fjarskipta og hrávörumiðlunar.[1]
Enron-hneykslið
Í lok árs 2001 kom í ljós að stjórnendur Enron höfðu stundað stórfelld bókhaldssvik í þeim tilgangi að blása upp hlutabréfaverð fyrirtækisins. Fyrirtækið fór að lokum fram á gjaldþrotaskipti, sem leiddi til þess að þúsundir starfa töpuðust ásamt því að fjöldi fjárfesta tapaði milljörðum dollara. Bókhaldssvikin voru með þeim stærstu í sögunni og hafa í seinni tíð verið nefnd Enron-hneykslið, en þau voru sögð hafa verið stofnanavædd, kerfisbundin og vel skipulögð.[2]
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.