Remove ads
From Wikipedia, the free encyclopedia
Björgúlfur Aðalsteinn Ólafsson (1. mars 1882 – 15. febrúar 1973) var íslenskur læknir, rithöfundur, þýðandi og frumkvöðull. Hann starfaði lengi sem læknir í nýlenduher Hollendinga, var helsti framámaðurinn í stofnun Skeljungs hf. og bjó við heimkomuna á Bessastöðum í tólf ár.
Björgúlfur Aðalsteinn Ólafsson | |
---|---|
Fæddur | 1. mars 1882 Mávahlíð, Snæfellsnesi |
Dáinn | 15. febrúar 1973 (90 ára) |
Þjóðerni | Íslenskt |
Menntun | Kaupmannahafnarháskóli |
Titill | Læknir |
Maki | Þórunn Benediktsdóttir (9. júní 1893 - 29. nóv. 1981) (g. 15. apríl 1915)[1] |
Börn | Sigrún, Ása, Egill, Þórunn og Ólafur[2] |
Foreldrar | Guðbjörg Melkjörsdóttir og Ólafur Jónsson |
Hann var fæddur á Snæfellsnesi og ólst upp að hluta til í Ólafsvík. Vorið 1903 fór Björgúlfur til Vestmannaeyja til að kenna knattspyrnu og stofnaði Knattspyrnufélag Vestmannaeyja (KV) sem tók þátt í fyrsta Íslandsmótinu í knattspyrnu 9 árum síðar árið 1912. Félagið skipti síðar um nafn og heitir ÍBV í dag.
Björgúlfur var herlæknir í nýlenduher Hollendinga í Austur-Indíu 1913 – 1917. Hann kynnti sér hitabeltissjúkdóma á hermannasjúkrahúsi í Tjimahi á Jövu 1913 – 1914, var herdeildarlæknir á Borneó 1914 – 1917. Þá var hann læknir í Singapore 1917 – 1926 en fluttist eftir það til Íslands. Hann var formaður Rauða kross Íslands um skeið.[3]
Björgúlfur nýtti sér hollensk sambönd sín við heimkomuna til Íslands og stofnaði Shell á Íslandi (nú Skeljungur) árið 1928, fékk hann til liðs við sig öfluga menn úr íslensku viðskiptalífi. Björgúlfur var stjórnarformaður Shell á Íslandi í rúma tvo áratugi.[4]
Björgúlfur frumsamdi sex bækur og kom sú fyrsta, Frá Malaja-löndum, út 1936. Þegar hún kom út var Björgúlfur kominn á sextugsaldur. Síðan koma bækurnar Sígræn sólarlönd, tvær bækur í bókaflokknum: Lönd og lýðir. Þær eru Indíalönd og Ástralía og Suðurhafseyjar. Seinasta frumsamda bókin hans kom út árið 1966, endurminningar frá ýmsum tímum æviskeiðsins og bar titilinn: Æskufjör og ferðagaman.
Björgúlfur þýddi einnig bækur. Þar á meðal: Þú hefur sigrað, Galilei, eftir Dmítríj Merezhkovskíj og Leonardo da Vinci, eftir sama höfund. Einnig þýddi hannn: Rembrandt eftir Hollendinginn Theun de Vries og einnig Kamelíufrúna eftir Alexandre Dumas yngri og Maríukirkjuna í París eftir Victor Hugo.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.