Yasuhiro Nakasone
From Wikipedia, the free encyclopedia
Yasuhiro Nakasone (27. maí 1918 – 29. nóvember 2019[1]) var japanskur stjórnmálamaður sem var forsætisráðherra Japans frá 27. nóvember 1982 til 6. nóvember 1987.
Staðreyndir strax Forsætisráðherra Japans, Þjóðhöfðingi ...
Yasuhiro Nakasone 中曽根康弘 | |
---|---|
Forsætisráðherra Japans | |
Í embætti 27. nóvember 1982 – 6. nóvember 1987 | |
Þjóðhöfðingi | Shōwa |
Forveri | Zenkō Suzuki |
Eftirmaður | Noboru Takeshita |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 27. maí 1918 Takasaki, Japan |
Látinn | 29. nóvember 2019 (101 árs) Tókýó, Japan |
Stjórnmálaflokkur | Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn |
Maki | Tsutako Nakasone (g. 1945; d. 2012) |
Börn | Hirofumi Nakasone |
Háskóli | Keisaralegi háskólinn í Tókýó |
Starf | Stjórnmálamaður |
Undirskrift |
Loka
Naksasone var samtímamaður þjóðarleiðtoga á borð við Brian Mulroney, Ronald Reagan, Helmut Kohl, François Mitterrand, Margaret Thatcher, Bettino Craxi og Mikhaíl Gorbatsjev. Hans er helst minnst fyrir að standa fyrir einkavæðingu japanskra ríkisfyrirtækja og fyrir að blása lífi í japanska þjóðernishyggju. Þegar hann lést 101 árs að aldri var hann elsti lifandi fyrrum forsætisráðherra Japans og elsti fyrrverandi ríkisstjórnarleiðtogi í heimi.