![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/2/2b/Icelandic-late19th-cent-immigrants-A-SEy-132.jpg/640px-Icelandic-late19th-cent-immigrants-A-SEy-132.jpg&w=640&q=50)
Vesturfarar
Íslendingar sem héldu til Ameríku á 19. öld / From Wikipedia, the free encyclopedia
Vesturfarar voru Íslendingar sem héldu til Brasilíu, Kanada og Bandaríkjanna á ofanverðri 19. öld og stóðu fólksflutningarnir allt fram að fyrri heimstyrjöld eða frá 1870 til 1914. Mestir voru þeir þó á seinni hluta 19. aldar. Ástæður fólksflutninganna voru margvíslegar, oftast voru þær fjárhagslegar, veðurfarslegar og tengdust skort á landrými (eða vistarbandinu), óánægja með gang sjálfstæðisbaráttunnar og stundum einnig ævintýraþrá. Talið er að um 15 þúsund Íslendingar eða 20% þjóðarinnar hafi farið vestur og ekki snúið aftur.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/2/2b/Icelandic-late19th-cent-immigrants-A-SEy-132.jpg/640px-Icelandic-late19th-cent-immigrants-A-SEy-132.jpg)