Timbúktú
From Wikipedia, the free encyclopedia
Timbúktú (formleg enska Timbuctoo; franska Tombouctou) er borg í norðanverðu Malí, í suðurjaðri Saharaeyðimerkurinnar. Borgin var menningarleg og trúarleg höfuðborg og miðstöð fyrir útbreiðslu íslams á 15. og 16. öld. Í borginni eru 3 stórar moskur og tveir háskólar, sem öll bera vitni um forna frægð. Frægasta moskan er Sankoremoskan.
- Timbúktú getur líka átt við sænska tónlistarmanninn Timbuktu.
Borgin á sér langa og merka sögu og er nú á Heimsminjaskrá UNESCO[1]. Íbúarnir eru af mismunandi uppruna, helst skal nefna Songhay, Tuareg, Fulani, og Mandé.