Tölva
Sjálfvirkt rafeindatæki til almennra nota fyrir framkvæmd talna- eða rökfræðilegra aðgerða / From Wikipedia, the free encyclopedia
Tölva er rafeindatæki sem notað er við hraðvirka úrvinnslu, geymslu og birtingu mikils magns gagna eftir nákvæmri forskrift forrits. Gagnvart almennum notanda samanstendur tölva af skjá, lyklaborði, mús, hátölurum og kassa sem inniheldur tölvuna sjálfa, ásamt diskadrifum og hugsanlegum fleiri inntaks- og úttaksmöguleikum.
Tölvan er líklega ein áhrifamesta uppfinning 20. aldarinnar og tölvutækni hefur gjörbreytt aðstæðum fólks til vinnu og leiks um allan heim.
IBM tilkynnti árið 2018 að þeir hefðu búið til minnstu tölvu í heimi (1 millimeter á kant, og notar blockchain-tækni), en mánuðum síðar í júní 2018 tilkynnti Háskóli Michigan minnstu tölvu (0.3 millimetrar á kant; tölvan frá IBM 10 sinnum stærri),[1] þar sem grjón er risastórt í samanburði. Sú tölva er með þráðlausu "neti", en þar sem hún er of lítil fyrir loftnet er ljós notað.