Søren Aabye Kierkegaard (5. maí 181311. nóvember 1855) var danskur heimspekingur og guðfræðingur, sem er venjulega talinn faðir tilvistarspekinnar. Hann brúaði bilið milli hegelskrar heimspeki og þess sem varð síðar tilvistarspeki. Kierkegaard gagnrýndi heimspeki Hegels harðlega og það sem hann sá sem innantóm formlegheit dönsku kirkjunnar. Mörg verka hans fjalla um trúarleg stef, eins og eðli guðstrúar, kristna kirkju sem stofnun, kristilega siðfræði og guðfræði og geðshræringar og tilfinningar manns þegar maður stendur frammi fyrir tilvistarfræðilegum ákvörðunum. Af þessum sökum er heimspeki Kierkegaards stundum lýst sem kristilegri tilvistarspeki og tilvistarspekilegri sálarfræði. Vandasamt er að skilgreina og túlka verk Kierkegaards, þar sem hann samdi flest eldri verka sinna undir dulnefnum og notaði svo ólík dulnefni til að gera opinberlega athugasemdir við og gagnrýna önnur verk sín undir öðrum dulnefnum. Af þessum sökum er fremur erfitt að greina á milli raunverulegra skoðana og viðhorfa Kierkegaards og þeirra sem hann notar eingöngu til þess að rökstyðja sig sem skálduð persóna. Ludwig Wittgenstein sagði að Kierkegaard hafi verið „dýpsti hugsuður nítjándu aldar“.[1]

Staðreyndir strax Vestræn heimspeki Heimspeki 19. aldar(Nýaldarheimspeki), Nafn: ...
Vestræn heimspeki
Heimspeki 19. aldar
Thumb
Nafn: Søren Aabye Kierkegaard
Fæddur: 5. maí 1813Kaupmannahöfn í Danmörku)
Látinn: 11. nóvember 1855 (42 ára) (í Kaupmannahöfn í Danmörku)
Skóli/hefð: Meginlandsheimspeki, tilvistarspeki
Helstu ritverk: Annaðhvort eða, Uggur og ótti, Endurtekningin, Sjúkdómurinn til dauðans
Helstu viðfangsefni: trúarheimspeki, frumspeki, þekkingarfræði, fagurfræði, siðfræði
Markverðar hugmyndir: faðir tilvistarspekinnar, angist, tilvistarfræðileg örvænting, þrjú stig mannlegrar tilvistar, riddari trúarinnar, huglægur sannleikur
Áhrifavaldar: Abraham,Job,Sókrates, Xenofon, Platon, Aristófanes, Gotthold Ephraim Lessing, Immanuel Kant, G.W.F. Hegel
Hafði áhrif á: Ludwig Wittgenstein, Franz Kafka, Martin Heidegger, Karl Jaspers, Jean-Paul Sartre, Martin Buber, Albert Camus, Paul Tillich, Karl Barth, W.H. Auden
Undirskrift: Thumb
Loka

Helstu ritverk

  • (1841) Um kaldhæðnishugtakið með tilliti til Sókratesar (Om Begrebet Ironi med stadigt Hensyn til Socrates)
  • (1843) Annaðhvort eða (Enten - Eller)
  • (1843) Uggur og ótti (Frygt og Bæven) (kom fyrst út í íslensku árið 2000 í þýðingu Jóhönnu Þráinsdóttur).
  • (1843) Endurtekningin (Gjentagelsen) (kom fyrst út á íslensku árið 1966 í þýðingu Þorsteins Gylfasonar).
  • (1844) Heimspekilegir molar (Philosophiske Smuler)
  • (1844) Angistarhugtakið (Begrebet Angest)
  • (1845) Stig lífsins leiðar (Stadier paa Livets Vei)
  • (1846) Óvísindalegur eftirmáli (Afsluttende uvidenskabelig Efterskrift)
  • (1847) Gjörningar ástarinnar (Kjerlighedens Gjerninger)
  • (1848) Kristileg samtöl (Christelige Taler)
  • (1849) Sjúkdómurinn til dauðans (Sygdommen til Døden)
  • (1850) Þjálfun í kristni (Indøvelse i Christendom)

Heimild

Tilvísanir

Tengt efni

Tenglar

Wikiwand in your browser!

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.

Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.