Prins og forseti Laos (1909-1995) From Wikipedia, the free encyclopedia
Souphanouvong prins (fæddur 13. júlí 1909, lést 9. janúar 1995) var, ásamt hálfbróður sínum prinsinum Souvanna Phouma og prinsinum Boun Oum frá Champasak, hluti af Prinsaþrenningunni svo nefndu sem urðu eins konar tákn fyrir hinar þrjár stríðandi fylkingar í Laos frá 1945 til 1975, kommúnista, hlutlausa og konungssinna. Hann var einn aðalleiðtogi Pathet Lao og forseti Alþýðulýðveldisins Laos frá desember 1975 til ágúst 1991.
Souphanouvong ສຸພານຸວົງ | |
---|---|
Forseti Laos | |
Í embætti 2. desember 1975 – 15. ágúst 1991 | |
Forsætisráðherra | Kaysone Phomvihane |
Forveri | Embætti stofnað |
Eftirmaður | Phoumi Vongvichit |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 13. júlí 1909 Luang Prabang, Laos |
Látinn | 9. janúar 1995 (85 ára) Vientiane, Laos |
Stjórnmálaflokkur | Byltingarflokkur Laoskrar alþýðu |
Maki | Viengkham Souphanouvong (g. 1938) |
Börn | 10 |
Háskóli | École nationale des ponts et chaussées |
Souphanouvong var einn sona Bounkhong prins, en hann var síðastur varakonunga Luang Prabang. Andstætt eldri hálfbræðrum sínum tveim sem einnig urðu alþekktir, Souvanna Phouma og Phetsarath, var móðir hans, Mom Kham Ouane, ekki af aðalsættum. Faðir þeirra, Bounkhong prins eignaðist þrettán syni og þrettán dætur með ellefu eiginkonum.
Souphanouvong var menntaður byggingarverkfræðingur frá Frakklandi og starfaði sem slíkur bæði í Laos og Víetnam, aðallega við brúarframkvæmdir. Hann var mikill málamaður og hafði gott vald á minnst átta tungumálum, þar á meðal latínu og grísku. Hann var kvæntur víetnömsku konunni Nguyen Thi Ky Nam og átti með henni tíu börn.
Souphanouvong var einn af leiðtogum Lao Issara-hreyfingarinnar sem barðist fyrir sjálfstæði Laos frá Frakklandi. Hann flúði 1945 til Víetnam eftir að tilraun til að skapa sjálfstætt Laos hafði verið barinn niður. Þar kynntist hann Ho Chi Minh og varð fyrir miklum áhrifum af honum og hreyfingu kommúnista.
Hann fékk viðurnefnið „rauði prinsinn“ og varð einn helsti leiðtogi og aðalfulltrúi út á við fyrir Pathet Lao-hreyfinguna og eftir valdatöku hennar varð hann fyrsti forseti Alþýðulýðveldisins. Souphanouvong hafði þó takmörkuð áhrif eftir valdatökuna, sá sem kom í hans stað sem leiðtogi var Kaysone Phomvihane sem fram að því hafði verið nánast óþekktur utan innsta kjarna kommúnista.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.