Reyniviður
From Wikipedia, the free encyclopedia
Reyniviðir eða reynir er ættkvísl 100–200 tegunda runna og trjáa af rósaætt sem finnst um allt norðurhvel jarðar.
Staðreyndir strax Reynir, Vísindaleg flokkun ...
Loka
Listi yfir reynitegundir er ekki endanlegur vegna fjölda smátegunda.
Almennt er tegundunum skift í tvær aðal undirættkvíslir og þrjár til fjórar minni undirættkvíslir:
- Sorbus subgenus Sorbus (genus Sorbus s.s.), einkennistegund; Ilmreynir , með samsett blöð, vanalega hárlaus eða lítið hærð að neðan. Útbreiðsla: kaldtemprað norðurhvel. (Genus Sorbus s.s.)
- Sorbus subgenus Aria (genus Aria), einkennistegund Sorbus aria, með heil blöðin vanalega mikið hvíthærð að neðan (svoleiðis nafnið á þýsku Weissbaum, 'hvítt tré'). Útbreiðsla: tempruð svæði í Evrópu og Asíu.
- Sorbus subgenus Micromeles (genus Aria), er óljós hópur nokkurra austur asískra tegunda (t.d. Sorbus alnifolia) með mjó blöð; vafasamt hvort að sé aðskilin og oft talin til Aria. Útbreiðsla: tempruð svæði norðaustur Asíu.
- Sorbus subgenus Cormus (genus Cormus), Með samsett blöð svipað og í undirættkvíslinni Sorbus, en með greinilega fused carpels in the fruit; einungis ein tegund, Sorbus domestica. Útbreiðsla: Norður Afríka, heittempruð svæði Evrópu, vestur Asía.
- Sorbus subgenus Torminaria (genus Torminalis), með frekar hlynlíkum blöðum; einungis ein tegund, Sorbus torminalis. Útbreiðsla: tempruð svæði Evrópu, suður að fjöllum Norður Afríku og austur að Kákasusfjöllum.
- Sorbus subgenus Chamaemespilus (genus Chamaemespilus), tvær runnkenndar tegundir; Sorbus chamaemespilus og Sorbus sudetica með heilum sléttum blöðum og bleikum blómum. Útbreiðsla: fjöll suður Evrópu.
- Hybrid eða blendingar eru algengir í ættkvíslinni, einnig á milli undirættkvísla; mjög oft eru blendingarnir apomictic (fjöga sér með geldæxlun), og geta þannig í raun fjölgað sér klónað með fræi án breytingar. Þetta hefur leitt til mikils fjölda örtegunda, sérstaklega í vestur Evrópu og hluta Kína.