From Wikipedia, the free encyclopedia
Skotareynir, ( fræðiheiti: Sorbus arranensis, á ensku Scottish eða Arran Whitebeam) er tegund af reyni sem er einlendur í Skotlandi, á eyjunni Arran.[1]
Skotareynir | ||||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Ástand stofns | ||||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||||
Sorbus arranensis Hedl. | ||||||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||||||
Sorbus intermedia var. arranensis (Hedl.) Rehd. |
Tegundinni er ógnað af tapi búsvæða og einungis 283 tré voru skráð fullvaxin 1980.[2] Trén eru vernduð í Glen Diomhan hjá Glen Catacol,[1] á norðurenda Arraneyjar með girðingu (friðlýst svæði). Náttúruleg útbreiðsla þess er takmörkuð við Abhainn Bheag (Uisge Solus), Glen Diomhan, Glen Catacol, Allt nan Calman, Allt Dubh, Gleann Easan Biorach og Glen Iorsa (Allt-nan-Champ). Trén eru fundin í smáum skógarleifum á óaðgengilegum bröttum hlíðum, og vex í súrum jarðvegi.[1]
Sorbus undirættkvíslin getur myndað lífvænleg fræ með geldæxlun (apomictic), án frjóvgunar. Hvert fræ er því yfirleitt klónn af móðurtrénu. Tegundin myndaðist á frekar flókinn máta; Seljureynir (Sorbus aria) gat af sér Urðareyni (Sorbus rupicola) sem finnst enn á Holy Isle, Firth of Clyde. Þessi blendingstegund blandaðist svo ilmreyni (Sorbus aucuparia) svo úr varð S. arranesis.[1] Sifjareynir (Sorbus pseudofennica) er svo aftur blendingur á milli S. arranensis og Reynis (S. aucuparia).
Gillian Smart sýndi með að nota útlitseinkenni að tegundirnar eru aðskildar og ekki tilfallandi breytileiki. Nokkur skörun er hinsvegar og það bendir til að einhver blöndun er á milli tegundanna.[3]
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.