Reykjavíkurflugvöllur
From Wikipedia, the free encyclopedia
From Wikipedia, the free encyclopedia
Reykjavíkurflugvöllur | |||
---|---|---|---|
Reykjavíkurflugvöllur séður úr vestri. | |||
IATA: RKV – ICAO: BIRK | |||
Yfirlit | |||
Gerð flugvallar | Almennur | ||
Eigandi | Íslenska ríkið | ||
Rekstraraðili | Isavia | ||
Þjónar | Reykjavík | ||
Staðsetning | Vatnsmýri í Reykjavík | ||
Hæð yfir sjávarmáli | 14 m / 45 fet | ||
Hnit | 64°07′48″N 021°56′26″V | ||
Heimasíða | isavia.is | ||
Flugbrautir | |||
Stefna | Lengd | Yfirborð | |
m | fet | ||
01/19 | 1,567 | 5.141 | Malbik |
06/24 | 960 | 3.150 | Malbik |
13/31 | 1.230 | 4.035 | Malbik |
Tölfræði (2014) | |||
Farþegar innanlands | 328.205 | ||
Farþegar milli landa | 36.544 | ||
Flughreyfingar innanlands | 60.447 | ||
Flughreyfingar milli landa | 3.233 | ||
Heimildir: Flughandbók (AIP) - Ísland[1] |
Reykjavíkurflugvöllur (IATA: RKV, ICAO: BIRK) er flugvöllur í Vatnsmýri í Reykjavík. Flugrekstur hófst þar árið 1919 við mjög frumstæðar aðstæður. Bretar gerðu svo varanlegan flugvöll þar í síðari heimsstyrjöld sem Íslendingar fengu full yfirráð yfir í stríðslok. Innanlandsflug hefur síðan þá haft miðstöð sína á vellinum og einnig gerðu Loftleiðir út þaðan til 1962 en þá var farið að nota Keflavíkurflugvöll fyrir millilandaflug.
Árið 2008 fóru 426.971 flugfarþegar um völlinn í innanlandsflugi og 36.918 í millilandaflugi (Grænland og Færeyjar).[2]
Lengi hafa staðið nokkrar deilur um flugvöllinn og staðsetningu hans. Andstæðingar hans benda á mikla nálægð við byggð og víðáttumikið byggingarlandið sem fer undir völlinn. Fylgismenn vallarins segja hann vera stóran vinnustað og nauðsynlegan til þess að Reykjavík geti sinnt sínu hlutverki sem höfuðborg landsins. Flugvöllurinn er á aðalskipulagi Reykjavíkurborgar til 2016 en framhaldið eftir það er óljóst. Þann 17. mars 2001 var haldin atkvæðagreiðsla í Reykjavík um framtíð flugvallarins. Þátttakan var dræm en naumur meirihluti gildra atkvæða var fyrir því að völlurinn myndi víkja eftir 2016. Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar voru ekki bindandi fyrir borgaryfirvöld þar sem borgarráð hafði samþykkt að niðurstaða atkvæðagreiðslunnar yrði bindandi ef 75 prósent atkvæðisbærra íbúa tækju þátt eða að 50 prósent atkvæðisbærra manna greiddu öðrum valkostinum í kosningunni atkvæði sitt. Niðurstöðurnar voru sem hér segir:[3][4][5]
„Vilt þú að flugvöllur verði í Vatnsmýri eftir árið 2016 eða vilt þú að flugvöllurinn fari úr Vatnsmýri eftir árið 2016?“ | ||
---|---|---|
Svar | Atkvæði | % |
I - Flugvöllur verði í Vatnsmýri eftir árið 2016 | 14.529 | 48,1 |
II - Flugvöllur fari úr Vatnsmýri eftir árið 2016 | 14.913 | 49,3 |
Auðir og ógildir | 777 | 2,6 |
Alls | 30.219 | 100,00 |
Kjörskrá og kjörsókn | 81.258 | 37,2 |
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.