Páll Jónsson (biskup)
From Wikipedia, the free encyclopedia
Páll Jónsson (1155 – 29. nóvember 1211) var biskup í Skálholti frá 24. febrúar 1195. Hann var launsonur Jóns Loftssonar ríka og ólst upp í Odda ásamt Snorra Sturlusyni. Hann lærði í Englandi og gerðist síðan goðorðsmaður og bóndi á Skarði á Landi áður en hann varð biskup. Hann var mikill höfðingi og safnaði að sér listamönnum í Skálholti og lét þá skreyta kirkjuna og gera fagra gripi, bæði fyrir kirkjuna og biskupsstólinn og eins til að senda erlendum höfðingjum. Meðal annars lét hann gera mikla steinkistu handa sjálfum sér. Hann var líka mikill menntamaður og lét rita bækur. Sjálfur var hann mikill söngmaður og þótti bera af öðrum á því sviði. Hann lét lögleiða helgi dýrlinganna Þorláks og Jóns helga.