Prússland
From Wikipedia, the free encyclopedia
Prússland (þýska Preußen, pólska Prusy, litháenska Prūsija, latína Borussia) var sögulegt ríki í Mið-Evrópu. Nafn sitt dregur Prússland af Borussi eða Prussi, baltneskri þjóð sem var skyld Litháum.
Þessi grein þarfnast yfirlestrar, hér gæti þurft að laga málfar, stafsetningu, og/eða framsetningu. Þú getur hjálpað til og lagfært greinina. Gott er að hafa handbókina til hliðsjónar. |
Prússland | |
Preußen | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: Gott mit uns (Þýska) Guð með okkur | |
Þjóðsöngur: Preussenlied | |
Höfuðborg | Königsberg (1525-1701) Berlín (1701-1806) Königsberg (1806) Berlín (1806-1947) |
Opinbert tungumál | þýska |
Stjórnarfar | Hertogadæmi (1525-1701) Konungsríki (1701-1918) Lýðveldi (1918-1933) Einræði (1933-1945) |
Stofnun | |
• Hertogadæmið Prússland | 10. apríl 1525 |
• Sameining við Brandenborg | 27. ágúst 1618 |
• Konungsríkið Prússland | 18. janúar 1701 |
• Norður-Þýska Ríkjasambandið | 1. júlí 1867 |
• Stofnun Þýskalands | 18. janúar 1871 |
• Fríríkið Prússland | 9. nóvember 1918 |
• Afnám (raunlega) | 30. janúar 1934 |
• Afnám (formlega) | 25. febrúar 1947 |
Flatarmál • Samtals |
297.007 km² |
Mannfjöldi • Samtals (1939) • Þéttleiki byggðar |
41,9 milljónir 141,12/km² |
Gjaldmiðill | Ríkisdalir (til 1750) Prússneskir dalir (1750-1857) |
Prússland hófst sem hluti af þýsku riddarareglunni eftir að hún hafði útrýmt ættbálki baltneskra Prússa sem áttu aðsetur þar. Eftir mörg átök við Konungsríkið Pólland varð þýska riddarareglan að léni Póllands árið 1466. Hertogadæmið Prússland var stofnað árið 1525 úr leifum þýsku riddarareglunnar, þegar stórmeistarinn Albert af Brandenborg-Ansbach breytti Prússlandi í arfgengt hertogadæmi undir ætt Hohenzollern. Prússland varð konungsríki árið 1701 sem stóð til enda Fyrri heimsstyrjaldarinnar árið 1918. Seinna varð það fríríki undir stjórn forsætisráðherra.
Konungsríkið Prússland var uppleyst árið 1918 ásamt öðrum þýskum konungsríkjum sem voru lögð niður með þýsku byltingunni. Eftir valdarán Franz von Papen árið 1932 tapaði Prússland nánast öllu sjálfsforræði í Weimar-lýðveldinu. Árið 1935 var Prússland sundrað af nasistum sem hluti af endurskipulagningu ríkisins (Gaue). Þrátt fyrir það var Hermann Göring enn forsætisráðherra Prússlands og fáein prússnesk ráðuneyti voru enn starfandi. Prússland var formlega afnumið með yfirlýsingu bandamanna árið 1947.
Prússland hafði mikil áhrif á sögu Þýskalands. Stríð milli Prússlands og Frakklands varð þess valdandi að Þýska keisaradæmið var stofnað árið 1871. Af þeim sökum var Þýskaland stjórnað af konungi Prússlands þar til 1918. Prússland var stærsta ríki Þýska keisaradæmisins og annað stærsta ríki undir stjórn þjóðverja.