Forsætisráðherra Taílands From Wikipedia, the free encyclopedia
Prayut Chan-o-cha (taílenska: ประยุทธ์ จันทร์โอชา; f. 21. mars 1954) er taílenskur stjórnmálamaður og fyrrum hershöfðingi í taílenska hernum[1] sem var forsætisráðherra Taílands frá 2014 til 2023 og varnarmálaráðherra frá árinu 2019.[2] Prayut var hæstráðandi taílenska hersins frá 2010 til 2014[3][4] og komst til valda eftir herforingjabyltingu gegn borgaralegum stjórnvöldum Taílands árið 2014. Prayut leiddi herforingjastjórn sem réð yfir Taílandi fyrstu fimm valdaár sín en var síðan kjörinn forsætisráðherra borgaralegrar ríkisstjórnar eftir umdeildar þingkosningar árið 2019.
Prayut Chan-o-cha ประยุทธ์ จันทร์โอชา | |
---|---|
Forsætisráðherra Taílands | |
Í embætti 22. maí 2014 – 22. ágúst 2023 | |
Þjóðhöfðingi | Bhumibol Adulyadej Maha Vajiralongkorn |
Forveri | Niwatthamrong Boonsongpaisan (starfandi) |
Eftirmaður | Srettha Thavisin |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 21. mars 1954 Nakhon Ratchasima, Taílandi |
Stjórnmálaflokkur | Palang Pracharat |
Maki | Naraporn Chan-o-cha |
Börn | 2 |
Háskóli | Þjóðarvarnarháskólinn, Konunglegi Chulachomklao hernaðarháskólinn |
Undirskrift |
Prayut Chan-o-cha fæddist þann 21. mars 1954 í héraðinu Nakhon Ratchasima í norðausturhluta Taílands. Faðir hans var ofursti í taílenska hernum og móðir hans var skólakennari. Hann á tvo bræður og eina systur. Annar bróðir hans er hershöfðingi í taílenska hernum og systir hans er hershöfðingi í flugher landsins.[5]
Prayut hlaut grunnnám í Lop Buri og gekk í menntaskóla í Bangkok. Að loknu menntaskólanámi hóf hann undirbúningsnám í hernaðarfræðum árið 1971 og gekk síðan árið 1976 í Konunglega Chulachomklao-hernaðarháskólann. Að loknu námi þar hóf hann hernaðarferil sinn í 21. fótgönguliði hersins, sem gekk undir gælunafninu „drottningarverðirnir“.[5]
Prayut varð síðar aðstoðarforingi 2. fótgönguliðs hersins. Leiðtogar herdeildarinnar mynduðu áhrifamikla hreyfingu innan hersins sem kallaðist Burapha Phayak (ísl. „Austurtígrarnir“) og taldi meðal annars til sín hershöfðingjann Prawit Wongsuwan, sem varð síðar meðlimur í herforingjastjórn Prayuts.[5]
Árið 2003 var Prayut hækkaður í tign og gerður foringi 2. fótgönguliðsins. Tveimur árum síðar var hann gerður foringi fyrstu yfirherdildarinnar, sem telur til sín 2. fótgönguliðið. Að einu ári liðnu hlaut hann síðan foringjastöðu innan hersins í heild sinni. Hann var starfsmannastjóri konunglega taílenska hersins frá 2008 til 2009 og varð síðan hæstráðandi hersins árið 2010. Fjórum árum síðar leiddi Prayut valdarán gegn lýðræðislega kjörinni ríkisstjórn Taílands. Um var að ræða 21. valdaránið í sögu landsins.[5]
Þann 22. maí 2014 leiddi Prayut Chan-o-cha blóðlaust valdarán gegn borgaralegum stjórnvöldum Taílands eftir sjö mánaða tímabil pólitískra óeirða. Í aðdraganda valdaránsins höfðu svokallaðir „gulstakkar“ staðið fyrir fjöldamótmælum í Bangkok gegn lýðræðislega kjörinni ríkisstjórn Yingluck Shinawatra forsætisráðherra.
Eftir valdaránið lofaði herforingjastjórnin nýjum þingkosningum en Prayut útnefndi engu að síður sjálfan sig forsætisráðherra þremur mánuðum síðar, þann 21. ágúst, og hélt embættinu án þess að vera kjörinn í tæp fimm ár. Eftir breytingar á stjórnarskrá landsins árið 2017 var ákveðið að þingkosningar skyldu haldnar þann 24. mars 2019, en að kosningaúrslitin yrðu þó ekki birt fyrr en eftir krýningu Vajiralongkorns Taílandskonungs þann 4. maí. Í aðdraganda kosninganna sagði Prayut af sér hershöfðingjatign og gerðist forsætisráðherraefni nýs stjórnmálaflokks, Palang Pracharat. Nýkjörið þing kom saman í fyrsta sinn þann 24. maí 2019, fimm árum eftir valdaránið.
Þann 5. júní 2019 var Prayut formlega kjörinn forsætisráðherra Taílands með meirihluta atkvæða bæði á hinni þjóðkjörnu fulltrúadeild taílenska þingsins og á öldungadeildinni, þar sem þingmennirnir eru útnefndir af hernum.[6][7] Margir af ráðherrum í stjórn Prayuts voru fyrrum hershöfðingjar. Borgaraleg réttindi eru enn mjög takmörkuð í Taílandi undir stjórn hans og grannt er fylgst með stjórnarandstæðingum.[6]
Þann 19. september 2020 áttu sér stað fjöldamótmæli gegn stjórn Prayuts þar sem milljónir Taílendinga kröfðust afsagnar forsætisráðherrans.[8]
Stjórnlagadómstóll Taílands leysti Prayut tímabundið frá störfum þann 24. ágúst 2022 á meðan tekið var til athugunar hvort hann mætti gegna embætti forsætisráðherra lengur samkvæmt stjórnarskrá landsins. Samkvæmt stjórnarskrárbreytingum sem Prayut gerði árið 2017 má forsætisráðherra ekki sitja lengur en átta ár. Andstæðingar hans telja því að Prayut hafi farið yfir þessi tímamörk en Prayut og bandamenn hans telja að miða beri við við upptöku núgildandi stjórnarskrárinnar árið 2017 eða við kjör Prayuts sem forsætisráðherra borgaralegrar stjórnar árið 2019.[9] Þann 3. október komst stjórnlagadómstóll að þeirri niðurstöðu að Prayut mætti sitja áfram til ársins 2025.[10]
Prayut er jafnframt lagahöfundur og hefur samið átta lög frá því að hann varð leiðtogi Taílands árið 2014.[5]
Prayut er kvæntur Naraporn Chan-o-cha og á tvö börn.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.