![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/d1/Pulse_sites-en.svg/langis-640px-Pulse_sites-en.svg.png&w=640&q=50)
Púls
From Wikipedia, the free encyclopedia
Púls eða hjartsláttartíðni á við hve mörgum sinnum hjartað herpist saman og slakar á (slær) á einni mínútu. Ef hjartað slær til dæmis 60 sinnum á einni mínútu þá er púlsinn sagður vera 60. Við stórar hreyfingar þurfa vöðvarnir meiri orku og þannig slær hjartað hraðar og púlsin hækkar. Hins vegar hægir hjartað á sér þegar dregur úr líkamsvirkni og púlsinn lækkar.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/d1/Pulse_sites-en.svg/320px-Pulse_sites-en.svg.png)
Til eru margar leiðir til að mæla púls einstaklings, en sú einfaldasta er að setja tvo fingur á stað þar sem stór slagæð liggur nálægt yfirborði húðarinnar og ýta aðeins þannig að hún snerti bein. Helstu staðirnir á líkamanum þar sem mæla má púlsinn eru á hálsnum, innan við olnbogann, á úlnliðnum, aftan á hnénu, nálægt ökklanum og á fætinum. Það má einnig mæla púlsinn með því að hlusta á hjartað með hlustunarpípu.