![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/c/cd/Ostryopsis_davidiana_01.jpg/640px-Ostryopsis_davidiana_01.jpg&w=640&q=50)
Ostryopsis
From Wikipedia, the free encyclopedia
Ostryopsis er lítil ættkvísl lauffellandi runna í bjarkarætt (Betulaceae).
Staðreyndir strax Ostryopsis, Vísindaleg flokkun ...
Ostryopsis | ||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
![]() Ostryopsis davidiana | ||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||
| ||||||||||||
Loka
Ættkvíslin er aðeins í Kína.[1] Þetta eru runnar sem verða 3 til 5 m á hæð, með stakstæðum, tvítenntum heslilíkum blöðum 2–7 sm löngum. Blómin koma að vori, með aðskildum kven og karlreklum. Fræin myndast í klösum, 3 til 5 sm löngum með 6 til 10 fræjum; hvert fræ er lítil hneta um 4–6 mm löng.[2]