![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/a/a6/President_NGO-DINH-DIEM_of_the_Republic_of_Viet-Nam.jpg/640px-President_NGO-DINH-DIEM_of_the_Republic_of_Viet-Nam.jpg&w=640&q=50)
Ngô Đình Diệm
Forseti Suður-Víetnams (1901–1963) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Ngô Đình Diệm (3. janúar 1901 – 2. nóvember 1963) var víetnamskur stjórnmálamaður sem var forsætisráðherra (1954–1955) og síðan fyrsti forseti Suður-Víetnams (Lýðveldisins Víetnams) frá árinu 1955 til dauðadags árið 1963.
Ngô Đình Diệm | |
---|---|
![]() Ngô Đình Diệm árið 1956. | |
Forseti Suður-Víetnams | |
Í embætti 26. október 1955 – 2. nóvember 1963 | |
Varaforseti | Nguyễn Ngọc Thơ |
Forveri | Embætti stofnað |
Eftirmaður | Dương Văn Minh |
Forsætisráðherra Suður-Víetnams | |
Í embætti 16. júní 1954 – 26. október 1955 | |
Þjóðhöfðingi | Bảo Đại |
Forveri | Bửu Lộc |
Eftirmaður | Embætti lagt niður |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 3. janúar 1901 Đại Phong Lộc, Quảng Bình, Annam, franska Indókína |
Látinn | 2. nóvember 1963 (62 ára) Saígon, Suður-Víetnam |
Dánarorsök | Skotinn til bana |
Stjórnmálaflokkur | Cần Lao |
Háskóli | Michigan-háskóli |
Undirskrift | ![]() |
Diệm leiddi Suður-Víetnam á fyrstu árum Víetnamstríðsins. Hann naut framan af stuðnings Bandaríkjanna í stríðinu en glataði trausti bæði þeirra og suður-víetnamskra herforingja smám saman, einkum vegna ofsókna sinna gegn búddistum innanlands. Diệm var handtekinn og tekinn af lífi árið 1963 í valdaráni sem stutt var af bandarísku leyniþjónustunni CIA.
Diệm er umdeild persóna í sögu Víetnams. Sumir sagnfræðingar hafa útmálað hann strengjabrúðu Bandaríkjamanna en aðrir hafa sett hann í hlutverk verndara gamalla víetnamskra hefða. Þegar Diệm var drepinn var almennt litið á hann sem spilltan einræðisherra.