From Wikipedia, the free encyclopedia
Najib Razak (f. 23. júlí 1953) var forsætisráðherra í Malasíu frá 2009 til 2018. Hann var sakfelldur árið 2020 fyrir 1MDB hneykslið.[1]
Najib stofnaði fjárfestingasjóðinn 1MDB eftir að hann varð forsætisráðherra árið 2009, en að sögn fréttastofunnar AFP dró hann, ásamt fjölskyldu sinni og vinum, sér fé úr sjóðnum, meðal annars til kaupa á listaverkum og fasteignum í Bandaríkjunum.
Lögreglan í Malasíu handtók Najib vegna áskana um spillingu þann 3. júlí 2018. Najib er meðal annars sakaður um að hafa dregið að sér 700 milljónir dollara úr opinberum þróunarsjóði.[2][3]
Þann 28. júlí 2020 var Najib sakfelldur fyrir peningaþvætti, misbeitingu valds og umboðssvik en ákærurnar gegn honum voru í sjö liðum og var hann sakfelldur í þeim öllum. Að því er kemur fram í frétt BBC um málið gæti Najib átt von á áratuga fangelsisvist en þar til hann hefur áfrýjað dómnum mun hann ekki sitja í fangelsi.[4][5][6][7]
Þann 8. desember 2021 var áfrýjun Najib gegn sakfellingunni vísað frá.[8][9][10]
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.