Múhameð bin Salman
Krónprins Sádi-Arabíu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Múhameð bin Salman bin Abdulaziz Al Sád (محمد بن سلمان بن عبدالعزيز آل سعود á arabísku letri) (f. 31. ágúst 1985)[1][2][3], stundum kallaður MbS,[1][4][5] er krónprins Sádí-Arabíu og einnig forsætisráðherra landsins. Hann hefur áður verið fyrsti varaforsætisráðherra,[6] forseti viðskipta- og þróunarmálaráðs og varnarmálaráðherra Sádi-Arabíu. Hann var einn yngsti ráðherra í heimi þegar hann tók við embættum sínum.[7] Múhameð hefur verið lýst sem valdsmanninum á bak við krúnu föður síns, Salmans konungs.[8]
Staðreyndir strax Krónprins Sádí-Arabíu Forsætisráðherra Sádi-Arabíu, Fyrsti varaforsætisráðherra Sádi-Arabíu ...
Múhameð bin Salman | |
---|---|
![]() | |
Krónprins Sádí-Arabíu Forsætisráðherra Sádi-Arabíu | |
Núverandi | |
Tók við embætti 27. september 2022 | |
Fyrsti varaforsætisráðherra Sádi-Arabíu | |
Í embætti 21. júní 2017 – 27. september 2022 | |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 31. ágúst 1985 (1985-08-31) (38 ára) |
Þjóðerni | Sádi-arabískur |
Maki | Sara bint Mashoor |
Börn | 4 |
Háskóli | Háskóli Sáds konungs |
Loka