Mecklenborg-Vorpommern
eitt af 16 sambandslöndum Þýskalands / From Wikipedia, the free encyclopedia
Mecklenborg-Vorpommern (á þýsku: Mecklenburg-Vorpommern) er sjötta stærsta sambandsland Þýskalands með rúmlega 23 þúsund km². Það er hins vegar annað fámennasta sambandslandið með aðeins 1,6 milljón íbúa (2021). Aðeins Bremen er fámennara. Mecklenborg-Vorpommern er norðaustast í Þýskalandi og liggur að Eystrasalti. Að austan er Pólland (Vestur-Pommern). Að sunnan er sambandslandið Brandenborg, að suðvestan Neðra-Saxland og að vestan Slésvík-Holtsetaland. Höfuðborgin er Schwerin, en hún er aðeins önnur stærsta borgin á eftir Rostock. Í Mecklenborg-Vorpommern eru óhemju mörg vötn. Mecklenburgische Seenplatte er víðáttumesta vatnasvæði Þýskalands. Eyjan Rügen, sem tilheyrir sambandslandinu, er að sama skapi stærsta eyja Þýskalands.
Nánari upplýsingar Fáni Mecklenborg-Vorpommern, Skjaldarmerki Mecklenborg-Vorpommern ...
Fáni Mecklenborg-Vorpommern | Skjaldarmerki Mecklenborg-Vorpommern |
---|---|
Upplýsingar | |
Höfuðstaður: | Schwerin |
Flatarmál: | 23.180.14 km² |
Mannfjöldi: | 1,6 miljónir (2021) |
Þéttleiki byggðar: | 69/km² |
Vefsíða: | mecklenburg-vorpommern.de |
Stjórnarfar | |
Forsætisráðherra: | Manuela Schwesig (SPD) |
Lega | |
Loka