![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/1/1c/Hilleman-Walter-Reed.jpeg/640px-Hilleman-Walter-Reed.jpeg&w=640&q=50)
Maurice Hilleman
bandarískur örverufræðingur sem þróaði fjölda mikilvægra bóluefna / From Wikipedia, the free encyclopedia
Maurice Ralph Hilleman (30. ágúst 1919 - 11. apríl 2005) var bandarískur örverufræðingur sem sérhæfði sig í bólusetningum. Hann þróaði yfir 36 bóluefni, meira en nokkur annar vísindamaður.[1] [2] Hann þróaði átta af þeim 14 bóluefnum sem nú er mælt með. Þau eru fyrir mislinga, hettusótt, lifrarbólgu A, lifrarbólgu B, hlaupabólu, heilahimnubólgu , lungnabólgu og Haemophilus influenza bakteríur. Hann gegndi einnig hlutverki við uppgötvun adenóvírusa (e. Adenoviridae) sem mynda kvef, lifrarbólguveirurnar og krabbamein -veirunnar SV40.
Staðreyndir strax Fæddur, Dáinn ...
Maurice Ralph Hilleman | |
---|---|
![]() Hilleman árið 1958, sem yfirmaður deildar vírussjúkdóma, Walter Reed Army Medical Center. | |
Fæddur | 30. ágúst 1919 |
Dáinn | 4. nóvember 2005 (86 ára) |
Dánarorsök | Krabbamein |
Þjóðerni | Bandarískur |
Menntun | Montana State University |
Störf | Örverufræðingur |
Þekktur fyrir | Einn merkasti vísindamaður 20. aldar. Þróaði fjölda mikilvægra bóluefna. |
Maki | Thelma Mason (g. 1943; d. 1963) – Lorraine Witmer (g.1964) |
Börn | 2 |
Loka
Hilleman er af mörgum sagður einn merkasti vísindamaður 20. aldarinnar. Hann er talinn hafa bjargað fleiri mannslífum en nokkur annar vísindamaður á 20. öld.[3][4][5][6]