Múhameð Alí af Egyptalandi
From Wikipedia, the free encyclopedia
Múhameð Alí (4. mars 1769 – 2. ágúst 1849) var albanskur herforingi í þjónustu Tyrkjaveldis sem réð yfir Egyptalandi sem landstjóri með titlinum Wāli frá 1805 til 1848. Múhameð Alí er gjarnan talinn stofnandi Egyptalands sem nútímaríkis vegna hinna fjölmörgu umbóta á efnahagi, menningu og her landsins sem hann framkvæmdi á stjórnartíð sinni. Afkomendur hans ríktu yfir Egyptalandi til ársins 1953, þegar lýðveldi var stofnað í Egyptalandi.
Staðreyndir strax
| ||||
Múhameð Alí Pasja محمد علي باشا | ||||
Ríkisár | 17. maí 1805 – 2. mars 1848 | |||
Skírnarnafn | Múhameð Alí Pasja al-Mas'ud ibn Agha | |||
Fæddur | 4. mars 1769 | |||
Kavala, Makedóníu, Tyrkjaveldi (nú Grikklandi) | ||||
Dáinn | 2. ágúst 1849 (80 ára) | |||
Alexandríu, Egyptalandi | ||||
Gröf | Moska Múhameðs Alí, Kaíró, Egyptalandi | |||
Konungsfjölskyldan | ||||
Faðir | Ibrahim Agha | |||
Móðir | Zeinab | |||
Börn | 10 |
Loka