![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/e/eb/Iceland_sat_cleaned.png/640px-Iceland_sat_cleaned.png&w=640&q=50)
Lómatjarnarætt
From Wikipedia, the free encyclopedia
Lómatjarnarætt er kennd við bæinn Lómatjörn í Grýtubakkahreppi. Ættina mynda niðjar hjónanna Guðmundar Sæmundssonar, bónda þar, og Valgerðar Jóhannesdóttur húsfreyju.
Guðmundur Sæmundsson var fæddur í Gröf í Öngulstaðarhreppi, í Eyjafirði þann 9. júní 1861. Foreldrar hans voru Sæmundur Jónasson (f. 1799 eða 1801, d. 1873) og Ingileif Guðrún Jónsdóttir (1831-1887).
Valgerður Jóhannesdóttir var fædd á Þönglabakka í Þorgeirsfirði í Fjörðum þann 15. október 1875. Foreldrar hennar voru Jóhannes Jónsson Reykjalín (1840-1915) og Guðrún Sigríður Hallgrímsdóttir (1849 – 1924). Kussungsstaðaætt eru afkomendur Jóhannesar og Guðrúnar, og er Lómatjarnarætt því kvísl af henni, og þar með líka af Reykjalínsætt.
Guðmundur og Valgerður bjuggu á Hlöðum á Grenivík og stundaði Guðmundur sjósókn þaðan frá 1895 – 1903. Árið 1903 fluttust þau að Lómatjörn, og bjuggu þar æ síðan. Guðmundur lést 31. október 1949 og Valgerður þann 7. desember 1965.