Loki
Goðmagn úr norrænni goðafræði / From Wikipedia, the free encyclopedia
Loki Laufeyjarson er afar fyrirferðarmikið goðmagn í norrænni goðafræði. Hann er sonur Laufeyjar og Fárbauta jötuns og er því af jötnaætt. Hann umgengst goðin mikið og blandaði eitt sinn blóði við Óðin sjálfan. Loki eignaðist þrjú hræðileg afkvæmi með tröllkonunni Angurboðu en kona hans var önnur. Hún hét Sigyn og eignaðist Loki tvo syni með henni.
- Loki er einnig íslenskt karlmannsnafn
Það hafa ekki fundist nein ummerki um að hann hafi nokkurs staðar verið tilbeðinn eða dýrkaður, enda hefur sárasjaldan hlotist gott úr því að treysta Loka. Loki er slægur og slunginn og er ásum oft til mikils ama. Af hrekkjum sínum og illvirkjum hefur Loki fengið mörg miður hugguleg viðurnefni til að mynda rógberi ásanna, frumkveði flærðanna og vömm allra goða og manna.
Í Eddukvæðum má finna Lokasennu sem segir frá rifrildi Loka við hin goðin og einnig segir hinn færeyski Loka Táttur frá því þegar Loki hjálpar mannfólkinu. Mest er að finna um Loka í Eddu Snorra Sturlusonar.