Norræn goðafræði
goðafræði heiðinna trúarbragða norðurgermanskra þjóða / From Wikipedia, the free encyclopedia
Norræn goðafræði er samnefni yfir goðafræði þeirra heiðnu trúarbragða sem voru áður fyrr iðkuð á Norðurlöndum öllum og áhrifasvæðum þeirra. Hún er þekktasta grein germanskrar goðafræði. Trú á hana lagðist víðast hvar af um það leyti sem kristni breiddist yfir Norðurlönd. Í dag er trúin stunduð á Íslandi og víða erlendis undir heitinu ásatrú. Ásatrúarfélagið er skráð trúfélag á Íslandi.