Lissabon-sáttmálinn
Evrópusambandssamningur frá árinu 2007 / From Wikipedia, the free encyclopedia
Lissabon-sáttmálinn (upphaflega kallaður endurskoðunarsáttmálinn) var alþjóðasamkomulag sem gerði breytingar á sáttmálunum tveimur sem leggja grunninn að stjórnkerfi Evrópusambandsins. Aðildarríki Evrópusambandsins skrifuðu undir Lissabon-sáttmálann þann 13. desember 2007 og hann tók gildi þann 1. desember 2009.[1] Í sáttmálanum eru breytingar gerðar á Maastrichtsáttmálanum (1993) og Rómarsáttmálanum (1957).