áströlsk söngkona, lagasmiður og leikkona From Wikipedia, the free encyclopedia
Kylie Ann Minogue OBE (f. 28. maí 1968) er áströlsk söngkona, lagasmiður og leikkona. Hún hóf feril sinn sem leikkona í áströlsku sjónvarpi aðeins barn að aldri í sápuóperunni Neighbours. Hún byrjaði að syngja árið 1987. Fyrsta smáskífa hennar, „The Loco-Motion“, lenti í fyrsta sæti á ástralska topplistanum og hélt því í sjö vikur. Vegna velgengni smáskífunnar fékk hún samning sem lagasmiður. Fyrsta breiðskífa hennar, Kylie kom út árið 1988. Smáskífan „I Should Be So Lucky“ af Kylie lenti í fyrsta sæti á topplistanum í Bretlandi. Á næstu tveimur árum komust þrettán smáskífur Kylie Minogue í topp-tíu sæti topplistans þar í landi. Fyrsta kvikmyndin sem hún lék í var The Delinquents.
Kylie Minogue | |
---|---|
Fædd | Kylie Ann Minogue 28. maí 1968 |
Ríkisfang |
|
Störf |
|
Ár virk | 1979–í dag |
Ættingjar | Dannii Minogue (systir) |
Tónlistarferill | |
Stefnur | |
Hljóðfæri | Rödd |
Útgefandi |
|
Vefsíða | kylie |
Undirskrift | |
Hún flutti lagið „On a Night Like This“ á Sumarólympíuleikunum 2000 í Sydney. Smáskífan hennar „Can't Get You Out of My Head“ náði fyrsta sæti í meira en fjörutíu löndum, og breiðskífan Fever (2001) naut vinsælda í mörgum löndum, þar á meðal í Bandaríkjunum.
Kylie fæddist í Melbourne í Ástralíu. Hún er fyrsta barn. Faðir hennar, Ronald Charles Minogue, er endurskoðandi af írskum uppruna[2] og móðir hennar, Carol Ann Jones, fyrrverandi dansari frá Wales.[3] Systir hennar, Dannii Minogue, er einnig söngkona og leikkona.[2] Bróðir hennar, Brendan, vinnur sem myndatökumaður í Ástralíu.[4]
Kylie Minogue hefur selt yfir 68 milljón plötur og 55 milljón smáskífur um allan heim.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.