Norður-kóreskur stjórnmálamaður From Wikipedia, the free encyclopedia
Kim Yo-jong (f. 26. september 1987) er norður-kóresk stjórnmálakona. Hún er systir Kims Jon-uns, núverandi leiðtoga Norður-Kóreu, og dóttir Kim Jong-ils, leiðtoga ríkisins frá 1994 til 2011. Kim Yo-jong er talin njóta mikilla áhrifa innan ríkisstjórnar Norður-Kóreu og hefur verið nefnd sem mögulegur eftirmaður Jong-un sem stjórnandi ríkisins.[1]
Kim Yo-jong 김여정 | |
---|---|
Fædd | 26. september 1987 |
Þjóðerni | Norður-kóresk |
Menntun | Kim Il-Sung-herháskólinn |
Störf | Stjórnmálamaður |
Flokkur | Verkamannaflokkur Kóreu |
Maki | Choe Song (g. 2014) |
Börn | 1 |
Undirskrift | |
Kim Yo-jong er fædd árið 1987 og er dóttir Kims Jong-il, leiðtoga Norður-Kóreu frá 1994 til 2011, og dansarans Ko Yong-hui. Föðurafi hennar var Kim Il-sung, stofnandi Norður-Kóreu. Kim Yo-jong ólst upp ásamt eldri bróður sínum, Kim Jong-un, og gekk með honum í skóla í Sviss á árunum 1996 til 2000. Að loknu námi í Sviss sneri hún heim til Norður-Kóreu og nam þar tölvunarfræði í Kim Il-Sung-herháskólanum í Pjongjang. Hún varð virk í starfi kóreska verkamannaflokksins árið 2007 og talið er að hún hafi starfað sem ritari föður síns síðustu æviár hans. Kim Yo-jong birtist fyrst opinberlega sem meðlimur Kim-valdaættarinnar árið 2011 við útför föður síns.[2]
Eftir valdatöku Kims Jong-un reis Yo-jong hratt til metorða í stjórnkerfi Norður-Kóreu. Árið 2014 birtist hún við hlið bróður síns við opinberar athafnir og tók þátt í kosningum á norður-kóreska þingið. Þátttaka hennar í kosningunum þótti boða að verið væri að undirbúa Yo-jong fyrir stærra hlutverk í stjórn ríkisins.[3] Árið 2017 var Yo-jong gerð að stjórnarmeðlimi í Verkamannaflokknum og var einungis önnur konan sem hlaut þá stöðu.[1] Árið 2018 mætti Yo-jong fyrir hönd bróður síns á Vetrarólympíuleikana sem haldnir voru í Suður-Kóreu það ár og gaf þar Moon Jae-in, forseta Suður-Kóreu, skilaboð um að Kim Jong-un væri reiðubúinn til friðarviðræðna. Þetta var í fyrsta skipti frá skiptingu Kóreu sem meðlimur Kim-ættarinnar steig fæti inn í Suður-Kóreu.[2]
Kim Yo-jong fylgdi bróður sínum á leiðtogafundum hans með Donald Trump Bandaríkjaforseta og Xi Jinping forseta Kína árin 2018 og 2019. Talið er að hún hafi starfað sem ráðgjafi Jong-un og hafi að nokkru leyti stýrt dagskrá og ímynd hans. Þar sem afvopnunarviðræðurnar við Suður-Kóreu og Bandaríkin skiluðu ekki beinhörðum árangri er talið að Jong-un hafi kennt systur sinni um og lækkað hana um tign í nokkurn tíma. Hún komst aftur inn í innsta hring Verkamannaflokksins árið 2020.[2]
Í yfirlýsingum sem Kim Yo-jong gaf út í júní árið 2020 var hún titluð einn æðsti stjórnandi miðstjórnar Verkamannaflokksins.[4] Hún lýsti meðal annars yfir að Norður-Kórea hefði ákveðið að slíta öllum hernaðar- og stjórnmálatengslum við Suður-Kóreu þar sem afvopnunarviðræður síðustu ára hefðu farið út um þúfur.[5]
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.