Katerína Sakellaropúlú
7. og núverandi forseti Grikklands / From Wikipedia, the free encyclopedia
Katerína Sakellaropúlú (grískt letur: Κατερίνα Σακελλαροπούλου; f. 30. maí 1956) er grísk stjórnmálakona sem hefur verið forseti Grikklands frá 13. mars 2020.[1] Hún var kjörin af gríska þinginu til að taka við embættinu af Prokopís Pavlopúlos þann 22. janúar 2020. Áður en hún varð forseti lýðveldisins var Sakellaropúlú forseti gríska ríkisráðsins, æðsta stjórnsýsludómstóls Grikklands. Hún er fyrsti kvenforseti Grikklands.[2]
Staðreyndir strax Forseti Grikklands, Forsætisráðherra ...
Katerína Sakellaropúlú Κατερίνα Σακελλαροπούλου | |
---|---|
Forseti Grikklands | |
Núverandi | |
Tók við embætti 13. mars 2020 | |
Forsætisráðherra | Kýríakos Mítsotakís Íoannís Sarmas Kýríakos Mítsotakís |
Forveri | Prokopís Pavlopúlos |
Persónulegar upplýsingar | |
Fædd | 30. maí 1956 (1956-05-30) (67 ára) Þessalóníku, Grikklandi |
Þjóðerni | Grísk |
Stjórnmálaflokkur | Óflokksbundin |
Maki | Pavlos Kotsonís |
Börn | 1 |
Háskóli | Háskólinn í Aþenu Université Panthéon-Assas |
Undirskrift |
Loka