fjallgarður í Mið- og Austur-Evrópu From Wikipedia, the free encyclopedia
Karpatafjöll (stundum Karpatíufjöll[1]) eru fjallgarður sem teygir sig frá Mið-Evrópu til Austur-Evrópu. Fjallgarðurinn er sá næstlengsti í Evrópu á eftir Skandinavíufjöllum, og er um það bil 1.500 km að lengd. Meðal dýra sem lifa í fjöllunum eru brúnbirnir, úlfar, geitur og gaupur. Flest þeirra búa í Rúmeníuhluta fjallanna. Í fjöllunum er líka að finna um það bil þriðjung af öllum plöntutegundum í Evrópu. Auk þess eru hverir og lindir algeng í fjallgarðinum.
Karpatafjöll eru fjallgarður sem liggur í löngum sveig um Tékkland (3%), Slóvakíu (17%), Pólland (10%), Ungverjaland (4%), Úkraínu (11%) og Rúmeníu (53%) og þaðan vestur yfir Dóná til Serbíu (2%). Hæstu fjöllin í fjallgarðinum eru Tatra-fjöll sem standa á landamærum Póllands og Slóvakíu og eru allt að 2.600 m að hæð. Næsthæsti hluti fjallgarðsins eru Austur-Karpatafjöll í Rúmeníu sem eru rúmlega 2.500 m há.
Fjallgarðurinn skiptist í þrjá hluta: Vestur-Karpatafjöll (m.a. Tatra-fjöll), Austur-Karpatafjöll og Suður-Karpatafjöll. Nokkrar borgir liggja við fjöllin, meðal annars Bratislava og Košice í Slóvakíu; Kraká í Póllandi; Cluj-Napoca, Sibiu, Alba Iulia og Braşov í Rúmeníu og Miskolc í Ungverjalandi.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.