Jóhanna Sigurðardóttir
íslensk stjórnmálakona og forsætisráðherra (2009-2013) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Jóhanna Sigurðardóttir (fædd 4. október 1942) er fyrrum forsætisráðherra Íslands. Jóhanna sat á þingi í 35 ár samfleytt frá árinu 1978 til 2013. Hún var félagsmálaráðherra árin 1987-1994 og 2007-2009. Í kjölfar efnahagshrunsins á Íslandi haustið 2008 varð hún forsætisráðherra í febrúar árið 2009 og var skömmu síðar kjörin formaður Samfylkingarinnar. Hún er fyrsti kvenkyns forsætisráðherra Íslands og fyrsta opinberlega samkynhneigða konan sem gegnir starfi forsætisráðherra á heimsvísu. Árið 2009 valdi Forbes hana á lista yfir 100 valdamestu konur heims.[1]
Staðreyndir strax Forsætisráðherra Íslands, Forseti ...
Loka