John Adams
2. forseti Bandaríkjanna / From Wikipedia, the free encyclopedia
John Adams (30. október 1735 – 4. júlí 1826) var 1. varaforseti (1789 - 1797) og 2. forseti Bandaríkjanna (1797–1801), diplómati, rithöfundur, einn af„landsfeðrum“ Bandaríkjanna. Áður en hann gerðist forseti var hann áhrifamikill í Bandaríska frelsisstríðinu sem leiddi til sjálfstæðis Bandaríkjanna frá Bretlandi.
John Adams | |
---|---|
Forseti Bandaríkjanna | |
Í embætti 4. mars 1797 – 4. mars 1801 | |
Varaforseti | Thomas Jefferson |
Forveri | George Washington |
Eftirmaður | Thomas Jefferson |
Varaforseti Bandaríkjanna | |
Í embætti 21. apríl 1789 – 4. mars 1797 | |
Forseti | George Washington |
Eftirmaður | Thomas Jefferson |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 30. október 1735 Braintree, Massachusettsflóa, bresku Ameríku |
Látinn | 4. júlí 1826 (90 ára) Quincy, Massachusetts, Bandaríkjunum |
Stjórnmálaflokkur | Sambandssinnaflokkurinn |
Maki | Abigail Smith (g. 1764; d. 1818) |
Börn | 6; þ. á m. John Quincy Adams |
Háskóli | Harvard-háskóli |
Starf | Stjórnmálamaður |
Undirskrift |
Sem lögfræðingur og aðgerðasinni varði Adams rétt einstaklinga til málsvarnar og stóð fyrir því að einstaklingar skyldu taldir saklausir þar til sekt þeirra hafði verið sönnuð. Hann varði meðal annars breska hermenn sem sátu undir morðákærum fyrir þáttöku sína í fjöldamorðunum í Boston.
Adams sat á Bandaríka þinginu fyrir Massachussetts nýlenduna á tímum bresks yfirráðs og leiddi þar köll eftir sjálfstæði Bandaríkjanna. Hann hjálpaði til við skrif á sjálfstæðisyfirlýsingu Barndaríkjanna árið 1776 og var helsti formælandi hennar á þinginu. Sem diplómata tókst Adams að aðstoða við undirskrift á friðarsamningi sem leiddi til þess að stríðinu á milli Bandaríkjanna og Bretlands lauk. Adams var aðalhöfundur stjórnarskrá Massachussetts árið 1780, sem síðar var notuð til viðmiðs þegar stjórnarskrá Bandaríkjanna var rituð.
Adams var kjörinn varaforseti tvisvar þegar hann var í framboði með George Washington og var kjörinn annar forseti Bandaríkjanna árið 1796. Hann var eini forseti Bandaríkjanna sem var kjörinn undir merkjum Sambandssinnaflokksins. Í forsetatíð sinni var Adams harðlega gagnrýndur af Jeffersonískum Demókratískum repúblikönum, sem og sínum eigin flokki sem þá var leiddur af andstæðingi Adams, Alexander Hamilton. Sem forseti undirritaði Adams umdeilda löggjöf sem gerði innflytjendum erfiðara að gerast ríkisborgarar og stækkaði her Bandaríkjanna til að takast á við Frakkland í óyfirlýstu stríði milli þjóðanna. Mikil reiði átti sér stað í Bandaríkjunum vegna ófriðsins við Frakkland og helsta afrek Adams sem forseta var að ná fram friðsamlegum endi á þessum átökum. Adams varð á forsetatíð sinni fyrsti Bandaríkjaforseti sem hafði aðsetur í hvíta húsinu.[1]