Hugleikur Dagsson
íslenskur listamaður og grínari / From Wikipedia, the free encyclopedia
Þórarinn Hugleikur Dagsson (f. 5. október 1977 á Akureyri), oftast kallaður Hugleikur Dagsson eða Hulli er íslenskur listamaður Foreldrar hans eru Dagur Þorleifsson blaðamaður og rithöfundur og Ingibjörg Hjartardóttir rithöfundur. Yngri bróðir hans er Þormóður Dagsson tónlistarmaður. [1] Eiginkona hans er Karen Briem. Hugleikur sá um kvikmyndagagnrýni í útvarpsþættinum Tvíhöfða. Um stund stjórnaði hann eigin þætti á Radíó sem kallaðist Hugleikur. Þar tók hann á þjóðfélagsmálum af ýmsu tagi. Þátturinn var ekki langlífur en rödd Hugleiks fékk þó áfram að njóta sín í kvikmyndagagnrýni í Tvíhöfða.
Hugleikur hefur getið sér gott orð með myndlist og vídeóverkum af ýmsu tagi. Einnig hafa myndasögur hans vakið mikla athygli en þær hafa komið út í bókum sem hann gaf sjálfur út fyrst um sinn en eru nú gefnar út af JPV útgáfu og einnig í blaðinu Grapevine. Þar fær beisk kímnigáfa Hugleiks að njóta sín svo sumum þykir nóg um. Hugleikur myndskreytti einnig kennslubókina Tungutak: Málsaga.
Þess má geta að Leikfélagið Hugleikur heitir eftir Hugleiki Dagssyni, en leikfélagið var stofnað af móður hans með fleirum árið 1984.[1]