![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/8/8d/Herman_Van_Rompuy_675.jpg/640px-Herman_Van_Rompuy_675.jpg&w=640&q=50)
Herman Van Rompuy
Forsætisráðherra Belgíu og forseti Evrópska ráðsins / From Wikipedia, the free encyclopedia
Herman Achille, greifi af Rompuy[1] (f. 31. október 1947), er belgískur stjórnmálamaður sem var áður forsætisráðherra Belgíu (2008-2009) og fyrsti fastkjörni forseti evrópska ráðsins (2009-2014).
Herman Van Rompuy | |
---|---|
![]() | |
Forseti evrópska ráðsins | |
Í embætti 1. desember 2009 – 30. nóvember 2014 | |
Forveri | Embætti stofnað |
Eftirmaður | Donald Tusk |
Forsætisráðherra Belgíu | |
Í embætti 30. desember 2008 – 25. nóvember 2009 | |
Þjóðhöfðingi | Albert 2. |
Forveri | Yves Leterme |
Eftirmaður | Yves Leterme |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 31. október 1947 (1947-10-31) (76 ára) Etterbeek, Belgíu |
Þjóðerni | Belgískur |
Stjórnmálaflokkur | Kristilegi demókratíski og flæmski flokkurinn Evrópski þjóðarflokkurinn |
Maki | Geertrui Windels |
Börn | Peter, Laura, Elke og Thomas |
Háskóli | Kaþólski háskólinn í Leuven |
Undirskrift | ![]() |
Van Rompuy er meðlimur í belgíska Kristilega demókratíska og flæmska flokknum. Hann var forsætisráðherra Belgíu frá 30. desember 2008 þar til Yves Leterme (sem var einnig forveri hans) leysti hann af hólmi þann 25. nóvember 2009.[2] Meðlimir evrópska leiðtogaráðsins kusu Van Rompuy í lok ársins 2009 til þess að gerast fyrsti fastráðni forseti ráðsins í samræmi við umbætur Lissabon-sáttmálans.[3] Van Rompuy var útnefndur í embættið frá 1. desember 2009 til 31. maí 2012[4][5] en tók ekki formlega við embættinu fyrr en 1. janúar 2010.[6] Van Rompuy var endurkjörinn þann 1. mars 2012 og gegndi forsetaembættinu til 30. nóvember 2014.[7]
Gordon Brown sagði um Van Rompuy við embættistöku hans að hann væri „sáttagerðamaður“ sem hefði „komið á pólitískum stöðugleika í landi sínu eftir marga mánuði af óvissu“.[8] Í grein dagblaðsins Le Figaro var Van Rompuy lýst á svipaðan máta og hann kallaður „vandvirkur hönnuður ómögulegra málamiðlana“ (l'horloger des compromis impossibles)[9] Í yfirlýsingu á blaðamannafundi í kjölfar embættistöku sinnar lýsti Van Rompuy nálgun sinni á forsetaembættið á eftirfarandi máta:
„Sérhvert land ætti að koma sigursælt úr samningaviðræðum. Samningaviðræður sem enda með tapliði er aldrei góð samningaviðræða. Ég mun taka hagsmuni og gildi allra til greina. Þótt samheldni okkar sé enn styrkur okkar er fjölbreytni okkar enn auður okkar.“
Ekki voru allir eins ánægðir með valið á Van Rompuy. Þegar Van Rompuy birtist í fyrsta sinn á Evrópuþinginu vandaði Nigel Farage, formaður breska Sjálfstæðisflokksins, honum ekki kveðjurnar og sagði um hann: „Ég vil ekki vera ókurteis, en satt að segja hefur þú persónutöfra rakrar mottu og útlit lítilfjörlegs bankastarfsmanns [...] Hver ert þú? Ég hafði aldrei heyrt um þig, enginn í Evrópu hafði heyrt þín getið [...] Þú ert frá Belgíu, sem er ekki einu sinni land.“[10][11]