Hellsing (OVA)
From Wikipedia, the free encyclopedia
Hellsing (ヘルシング, Herushingu) er japönsk OVA þáttaröð sem gefin er út á DVD, og er hún byggð á hinni vinsælu mangaseríu; Hellsing eftir Kouta Hirano. Ekki hefur verið gert opinbert hve margir þættir verði framleiddir, en þar sem hver DVD diskur nær yfir örlítið minna en eina bók (og vegna þess að Hellsing: Dögunin verður einnig gefið út[7]) má álykta að gefnir verði út um 10 DVD diskar.[1]
- Þessi síða fjallar um Hellsing OVA seríuna. Til að sjá aðrar síður tengdar „Hellsing“ getur þú farið á Hellsing.
Hellsing | |
---|---|
ヘルシング (Herushingu) | |
Tegund | Sagnfræðilegt Hryllingssaga Hasar Ofurnáttúrulegt |
OVA: Hellsing | |
Leikstýrt af | Tomokazu Tokoro Kouta Hirano, handritshöfundur |
Myndver | ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() |
Fjöldi þátta | Um tíu [1] |
Gefið út | Útgáfudagur:
Í Japan: Hellsing Ⅰ - 10. febrúar 2006 [2][3], -Digest for freaks - 22. janúar 2006 [4] Hellsing Ⅱ - 25. ágúst, 2006 [5][3], Hellsing Ⅲ - 4. apríl 2007 Hellsing Ⅳ - 22. febrúar 2008 Í Bandaríkjunum: Hellsing Ⅰ - 5. desember 2006 |
Sýningartími | Sýningartími:
Hellsing Ⅰ - 50 mínútur [2] -Digest for freaks - 35 mínútur [4] Hellsing Ⅱ - 43 mínútur [5], Hellsing Ⅲ - 40 mínútur [6] |
Síða um Hellsing á IMDb |
Áður höfðu komið út anime þættir sem byggðir voru á Hellsing bókunum, en þeir náðu aðeins yfir fyrstu tvær bækurnar og slepptu því stórum hlutum úr sögunni, breyttu persónum og höfðu annan endi sem ekki tengdist upprunalegu bókinni- því var ákveðið að framleiða Hellsing OVA, sem átti að fylgja bókunum mun betur. Hellsing OVAið fylgir sögu Hellsing bókanna ekki bara betur, heldur fylgir það líka teiknistíl bókanna nánar. Þáttaröðin notast einnig við meiri þrívídd en fyrri anime-þáttaröðin, og margar persónur endurheimta persónuleika sinn úr bókunum, eins og Integral og Seras, en þær eru talsvert dýpri persónur en í upprunalegu þáttunum.
Hver DVD diskur inniheldur einn Hellsing OVA þáttur og eru þættirnir tölusettir með rómverskum tölustöfum. Hver diskur kemur út í tveimur útgáfum; venjulegri og takmarkaðri útgáfu. Venjulega útgáfan inniheldur þáttinn og bækling, á meðan takmarkaða útgáfan hefur öðruvísi hulstursmynd, oft aukaefni t.d. tónlistarmyndbönd, viðtöl, bæklinga með myndum og aukahluti eins og brjóstmynd af Alucardi[2] og Alexander Andersyni[6] sem og grunnskissur af persónunum.[2]
Í Bandaríkjunum er Hellsing OVA er einnig þekkt undir nafninu Hellsing Ultimate.